Í 38. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.592.000 eigin hluti að kaupverði 9.417.610 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
16/09/2024 | 09:44:16 | 487.000 | 3.67 | 1.787.290 |
17/09/2024 | 13:34:02 | 501.000 | 3.62 | 1.813.620 |
18/09/2024 | 11:05:03 | 511.000 | 3.64 | 1.860.040 |
19/09/2024 | 15:18:55 | 606.000 | 3.62 | 2.193.720 |
20/09/2024 | 14:17:44 | 487.000 | 3.62 | 1.762.940 |
Samtals | 2.592.000 | 9.417.610 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 54.468.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 57.060.000 hluti, eða um 1,55% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 217.623.210 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is