Í 41. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.748.000 eigin hluti að kaupverði 10.477.480 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
07/10/2024 | 12:22:12 | 888.000 | 3.82 | 3.392.160 |
10/10/2024 | 10:24:45 | 994.000 | 3.80 | 3.777.200 |
11/10/2024 | 13:49:31 | 866.000 | 3.82 | 3.308.120 |
Samtals | 2.748.000 | 10.477.480 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 62.832.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 65.580.000 hluti, eða um 1,78% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 249.602.890 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is