Í 43. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.484.000 eigin hluti að kaupverði 13.109.560 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
21/10/2024 | 10:39:10 | 602.000 | 3.76 | 2.263.520 |
21/10/2024 | 15:23:00 | 366.000 | 3.77 | 1.379.820 |
22/10/2024 | 09:38:32 | 666.000 | 3.76 | 2.504.160 |
23/10/2024 | 10:41:11 | 606.000 | 3.77 | 2.284.620 |
24/10/2024 | 10:11:34 | 738.000 | 3.76 | 2.774.880 |
25/10/2024 | 09:55:32 | 506.000 | 3.76 | 1.902.560 |
Samtals | 3.484.000 | 13.109.560 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 67.824.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 71.308.000 hluti, eða um 1,94% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 271.219.770 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is