Nova Klúbburinn hf.: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 45
Í 45. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.032.000 eigin hluti að kaupverði 8.400.420 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
04/11/2024 | 09:39:39 | 538.000 | 3.93 | 2.114.340 |
05/11/2024 | 14:22:30 | 606.000 | 4.16 | 2.520.960 |
07/11/2024 | 09:32:42 | 888.000 | 4.24 | 3.765.120 |
Samtals | 2.032.000 | 8.400.420 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 74.308.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 76.340.000 hluti, eða um 2,07% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 291.034.030 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is