Fredag 9 Maj | 10:00:43 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-27 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-02 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2024-11-25 10:09:32

Í 47. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.010.000 eigin hluti að kaupverði 12.096.330 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
18/11/202409:34:54687.0004.022.761.740
19/11/202414:29:46707.0004.022.842.140
20/11/202409:45:17558.0004.062.265.480
21/11/202412:33:48503.0003.992.006.970
22/11/202413:21:00555.00042.220.000
Samtals3.010.000 12.096.330

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 80.156.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 83.166.000 hluti, eða um 2,26% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 319.006.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is