Í 49. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.504.000 eigin hluti að kaupverði 14.364.200 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
02/12/2024 | 09:35:20 | 666.000 | 4.04 | 2,690,640 |
03/12/2024 | 11:12:29 | 950.000 | 4.08 | 3,876,000 |
04/12/2024 | 09:39:24 | 938.000 | 4.12 | 3,864,560 |
05/12/2024 | 11:51:06 | 950.000 | 4.14 | 3,933,000 |
Samtals | 3.504.000 | 14.364.200 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 86.223.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 89.727.000 hluti, eða um 2,44% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 345.579.700 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is