Í 51. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.914.000 eigin hluti að kaupverði 12.676.180 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
16/12/2024 | 09:43:03 | 666.000 | 4.34 | 2.890.440 |
17/12/2024 | 09:48:25 | 583.000 | 4.36 | 2.541.880 |
19/12/2024 | 10:00:27 | 888.000 | 4.36 | 3.871.680 |
20/12/2024 | 12:17:01 | 777.000 | 4.34 | 3.372.180 |
Samtals | 2.914.000 | 12.676.180 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 92.878.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 95.792.000 hluti, eða um 2,60% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 371.368.900 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is