Fredag 9 Maj | 09:46:53 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-27 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-02 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2024-12-31 13:20:44

Í 52. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 994.000 eigin hluti að kaupverði 4.294.080 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
23/12/202411:14:55994.0004.324,294,080
Samtals994.000 4.294.080

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 95.792.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 96.786.000 hluti, eða um 2,63% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 375.662.980 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is