Í 6. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.241.000 eigin hluti að kaupverði 13.790.680 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
03/02/2025 | 09:33:11 | 767.000 | 4.30 | 3.298.100 |
04/02/2025 | 14:33:22 | 666.000 | 4.27 | 2.843.820 |
06/02/2025 | 10:30:29 | 950.000 | 4.24 | 4.028.000 |
07/02/2025 | 10:07:54 | 858.000 | 4.22 | 3.620.760 |
Samtals | 3.241.000 | 13.790.680 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 110.139.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 113.380.000 hluti, eða um 3,08% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 447.447.630 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is