Nova Klúbburinn hf. - Reglubundin tilkynning um kaup Nova Klúbbsins hf. á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í 35. viku 2026 (24.-30. ágúst 2026) keypti Nova Klúbburinn hf. („Félagið“) ekkert af eigin bréfum.
Er hér um að ræða tilkynningu um framgang endurkaupaáætlunar Félagsins sem var hrint í framkvæmd 29. júní 2026, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags 29. júní 2026.
Félagið hefur nú keypt samtals 18.285.000 hluti í Félaginu sem samsvarar 5,30% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals ISK 70.362.600 sem samsvarar 12,793% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Félagið á nú samtals 18.285.000 eigin hluti, eða 0,53% af heildarhlutafé Félagsins sem er 3.447.374.756.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq OMX Iceland hf. að hámarki keyptir 344.737.475 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en ISK 550.000.000. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2027, nema ef skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, og 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.