Nova klúbburinn hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar
Á aðalfundi Nova klúbbsins hf. þann 26. mars 2026 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum.
Stjórn Nova Klúbbsins hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar til kaupa á eigin bréfum. Útgefið hlutafé Nova klúbbsins er 3.447.374.756 hlutir og eru engir hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar. Endurkaupin nú munu, skv. ákvörðun stjórnar, nema allt að 550 milljónum kr. að kaupverði.
Framkvæmd áætlunarinnar hefst í dag, mánudaginn 29. júní, og mun áætlunin vera í gildi þar til framangreindri fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en fram að birtingu ársreiknings félagsins vegna ársins 2026.
Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra.
Arctica Finance mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri, á fjarfestar@nova.is