Bifogade filer
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Reksturinn traustur og á áætlun, hagræðingaraðgerðir innleiddar og ný sóknarverkefni framundan
Nova Klúbburinn skilaði traustri afkomu á fyrsta ársfjórðungi 2026 í samræmi við áætlanir félagsins. Heildartekjur námu 3.231 m.kr. og jukust um 2,5% milli ára þegar leiðrétt er fyrir tekjum af Sendafélaginu á fyrra ári. Þjónustutekjur námu 2.735 m.kr. og hækkuðu um 3,2%. EBITDA fjórðungsins var 649 m.kr. og EBITDA hlutfallið var 20,1%. Hagnaður eftir skatta nam 107 m.kr. og handbært fé frá rekstri var 230 m.kr. Á fjórðungnum réðst félagið í hagræðingaraðgerðir með einfaldara skipuriti og sameiningu sviða, en áhrif þeirra koma fram síðar á árinu. Þá undirbýr Nova Klúbburinn stofnun nýs lággjaldafélags á fjarskiptamarkaði sem byggt er á gervigreind frá fyrsta degi, skref sem markar þáttaskil á íslenskum fjarskiptamarkaði.
Í kjölfar sölu 4G/5G dreifikerfis Nova hf. til Sendafélagsins ehf. um áramótin hefur umfang og rekstrarfyrirkomulag samstæðunnar breyst. Af þeim sökum eru rekstrartölur ársins ekki að öllu leyti samanburðarhæfar við tölur fyrra árs. Rekstur félagsins er á áætlun, í samræmi við breytt rekstrarfyrirkomulag, og niðurstöður fyrsta ársfjórðungs styðja við útgefið spábil um EBITDA niðurstöður ársins.
Helstu niðurstöður á fyrsta ársfjórðungi:
- Heildartekjur voru 3.231 m.kr. og aukast um 2,5% á milli ára, leiðrétt fyrir tekjum af Sendafélagi á fyrra ári
- Þjónustutekjur námu samtals 2.735 m.kr. og jukust um 3,2% á milli ára.
- EBITDA nam 649 m.kr. og EBITDA hlutfallið var 20,1% á fjórðungnum
- Hrein fjármagnsgjöld á fjórðungnum námu 203 m.kr.
- Hagnaður fjórðungsins eftir skatta var 107 m.kr.
- Handbært fé frá rekstri á tímabilinu er 230 m.kr.
- Eiginfjárhlutfall var 41,1% í lok tímabilsins og eigið fé nam samtals 9.628 m.kr.
Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins, segir árið fara vel af stað og rekstur á áætlun. Auknum kostnaðarþrýstingi hefur verið mætt með hagræðingaraðgerðum sem þegar hefur verið ráðist í, en áhrif þeirra munu koma fram síðar á árinu.
„Niðurstaða fyrsta ársfjórðungs 2026 er í samræmi við áætlanir og reksturinn heldur áfram að vera traustur. Í heildina eru tekjurnar að aukast um 2,5% ef leiðrétt er fyrir tekjum Nova frá Sendafélaginu á fyrra ári. Tekjur af FlakkNetinu standa nokkurn veginn í stað þar sem tekjur af farsímaþjónustu voru að aukast en erlendar reikitekjur drógust saman á móti. Tekjur af FastNetinu eru í góðum vexti sem skýrist af bæði fjölgun viðskiptavina með heimilistengingar og sterkum tekjuvexti af Sérlausnum. Tekjur af Vörusölu dragast saman milli ára sem skýrist helst af minni sölu á handtækjum, en innkaupaverð dregst saman á móti og áhrif á rekstrarniðurstöðu eru því óveruleg. Við finnum fyrir almennum kostnaðarþrýstingi sem kemur fram í hækkun kostnaðar milli ára. Til að mæta því höfum við farið í hagræðingaraðgerðir og á fjórðungnum innleiddum við einfaldara skipurit, fækkuðum framkvæmdastjórum og sameinuðum svið. Áhrif þeirra breytinga á reksturinn munu koma betur fram þegar líður á árið og jafngilda þær 5,4% lækkun á ársgrunni.
Undirliggjandi rekstur er sterkur, sjóðstreymi er traust og grunnurinn til að sækja fram er öflugur. Við höldum áfram að einbeita okkur að öguðum rekstri, skynsamlegum fjárfestingum og arðsemi sem skapar virði fyrir hluthafa til lengri tíma.
Á næstu dögum stígum við svo enn eitt djarft skref til sóknar með stofnun nýs lággjaldafélags á fjarskiptamarkaði þar sem sótt er fram út frá möguleikum gervigreindar í allri uppbyggingu félagsins frá fyrsta degi. Stofnun félagsins mun marka þáttaskil á íslenskum fjarskiptamarkaði og án efa verða fyrirmynd annarra fyrirtækja varðandi uppbyggingu. Að baki félaginu stendur fámennur og öflugur hópur sem sýnir svart á hvítu hvernig gervigreind getur umbylt rekstrarlíkaninu í fjarskiptum. Þetta eru skýr skilaboð til markaðarins um að Nova ætli að leiða þróunina á markaði hér eftir sem hingað til. Félagið byggir á nýrri heildsöluvöru sem Nova hefur þróað. Sú lausn er opin fyrirtækjum á Íslandi sem vilja bjóða fjarskiptaþjónustu undir eigin vörumerki. Þetta skapar Nova Klúbbnum nýja tekjustoð sem nýtir 5G-innviði okkar enn betur.
Með þessu er Nova Klúbburinn að endurskilgreina íslenskan fjarskiptamarkað og hafa mótandi áhrif á þróun hans til framtíðar. Við trúum því einfaldlega að besta leiðin til að verja sterka stöðu sé að vera fyrst til að endurskilgreina hana. Nova Klúbburinn er á skýrri þroska- og vaxtarvegferð. Við sjáum tækifæri í samspili fjarskipta, tækni og innviða í heimi sem hreyfist hratt, væntingar viðskiptavina eru miklar og breytingar örar. Nýlega tilkynntum við um kaup á Ofar, sem eru nú til umfjöllunar hjá Samkeppniseftirlitinu. Nái kaupin fram að ganga styrkja þau verulega stöðu klúbbsins á sviði tæknibúnaðar og þjónustu við fyrirtæki, með Ofar sem þjónustar í dag um 10.000 fyrirtæki. Nýja hátæknifélagið okkar og Rafal, sem sérhæfir sig í IoT-lausnum, opna nýjar dyr til stórnotenda, gagnavera og inn á opinbera markaðinn þar sem við sjáum sérstaklega spennandi tækifæri. Spennandi verkefni til að tryggja hagkvæmni á borð við öryggisvaktanir, vaktanir á byggingum, götuljósastýringar og heilsutækni verða meðal viðfangsefna félagsins.
Við höfum leitt umræðu um geðrækt og ábyrga símanotkun á Íslandi árum saman, með herferðum eins og Sím-zen, Loggát, Allir úr og nú síðast bananaherferðinni. Það kann að hljóma undarlegt að símafyrirtæki hvetji fólk til að vera minna í símanum, en fyrir Nova er það einfaldlega kjarni okkar menningar. Við viljum að fólk noti tæknina til að lifa litríkara lífi og nýti tæknina til að tengjast fólki í stað þess að einangrast. Þessi afstaða, ásamt sterkum kúltúr og besta liðinu, er það sem heldur okkur í forystu ár eftir ár og er undirstaða þess vaxtar sem við sjáum til framtíðar.
Horfur fyrir árið 2026 eru góðar. Nova Klúbburinn stendur á traustum grunni, er með skýra stefnu og öflugt teymi. Við hlökkum til að skila áframhaldandi virði til hluthafa og viðskiptavina á árinu sem er framundan.”