Lördag 30 Maj | 10:03:06 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2027-11-05 22:05 Kvartalsrapport 2027-Q3
2027-08-12 22:05 Kvartalsrapport 2027-Q2
2027-05-06 22:05 Kvartalsrapport 2027-Q1
2027-03-02 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-11-05 22:05 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-06 22:05 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-05-07 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-03 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-10 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-21 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-08 - Kvartalsrapport 2025-Q1

Beskrivning

LandSchweiz
ListaMid Cap Iceland
SektorHälsovård
IndustriBioteknik
Oculis Holding är specialiserade inom bioteknik. Bolaget bedriver forskning och utveckling inom topikala behandlingar för ögonsjukdomar. Exempel på specialistområden inkluderar diabetiskt makulaödem, bahandlingar för torra ögon och akut optisk neurit. Störst verksamhet återfinns inom Europa, där forskning bedrivs i egen regi men även via samarbetspartners. Bolaget har sitt huvudkontor i Zug, Schweiz.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-05-14 22:05:00

ZUG, Sviss, May 14, 2026 (GLOBE NEWSWIRE) -- Oculis Holding AG (Nasdaq: OCS / XICE: OCS) („Oculis” eða „félagið”), tilkynnti í dag niðurstöður aðalfundar 2025, sem haldinn var 13. maí 2026 í Ochsen-Zug, Kolinplatz 11, CH-6300 Zug, Sviss, klukkan 10:00 að íslenskum tíma / 12:00 p.m. CEST, þar á meðal kjör Gregory D. Perry í stjórn félagsins.

Niðurstöður aðalfundar 2026

Hluthafar félagsins samþykktu alla dagskrárliði.

Hluthafar samþykktu ársreikning ársins 2025, þar á meðal lögbundin reikningsskil og samstæðureikning 2025.

Hluthafar tóku til greina að á grundvelli lögbundinna reikningsskila var tap félagsins CHF 33.670.000 á fjárhagsárinu sem lauk þann 31. desember 2025, og ákváðu að uppsafnað tap í efnahagsreikningi að fjárhæð CHF 80.247.000 skyldi flutt yfir á næsta reikningsár.

Meðlimir stjórnar og framkvæmdastjórnar voru leystir undan ábyrgð (e. granted discharge) vegna starfa sinna á árinu 2025.

Anthony Rosenberg var endurkjörinn sem stjórnarmaður og formaður stjórnar. Christina Ackermann, Lionel Carnot, Arshad M. Khanani, Martijn Kleijwegt, Geraldine O’Keeffe, Riad Sherif og Robert K. Warner voru endurkjörin sem stjórnarmenn. Lionel Carnot, Geraldine O'Keeffe og Gregory D. Perry voru kjörin sem meðlimir starfskjaranefndar. PricewaterhouseCoopers SA (Lausanne) voru endurkjörin sem endurskoðendur félagisns. Blum & Partner AG (Zug) var kjörið sem óháður umboðsaðili (e. Independent Proxy).

Hluthafar samþykktu starfskjör þeirra stjórnarmanna sem ekki sitja í framkvæmdastjórn:

  • Hámarksfjárhæð fastrar (ekki frammistöðutengdrar) þóknunar fyrir stjórnarmenn sem ekki sitja í framkvæmdastjórn til loka aðalfundar félagsins árið 2027: Samtals USD 572.000.
  • Hámarksvirði hlutarfjár eða hlutafjártengdrar þóknunar fyrir átta stjórnarmenn sem ekki sitja í framkvæmdastjórn til loka aðalfundar félagsins árið 2027: USD 2.150.000 (að undanskildu tryggingagjaldi og lífeyrisiðgjöldum laungreiðanda).

Hluthafar samþykktu starfskjör meðlima framkvæmdastjórnar:

  • Hámarksfjárhæð fastrar (ekki frammistöðutengdrar) þóknunar fyrir þrjá meðlimi framkvæmdastjórnar fyrir almanaksárið 2027, til greiðslu á árinu 2027: Samtals USD 2.500.000
  • Hámarksfjárhæð breytilegrar þóknunar fyrir þrjá meðlimi framkvæmdastjórnar vegna almanaksársins 2026, til greiðslu árið 2027: Samtals USD 1.800.000
  • Hámarksvirði hlutafjár- eða hlutafjártengdrar þóknunar fyrir þrjá meðlimi framkvæmdastjórnar til loka almanaksársins 2027: USD 18.000.000 (að undanskildu tryggingagjaldi og lífeyrisiðgjöldum laungreiðanda).

Hluthafar samþykktu, í ráðgefandi atkvæðagreiðslu, starfskjaraskýrslu félagsins fyrir árið 2025.

Hluthafar samþykktu hlutafjárramma (e. Capital Band) sem nemur 31.020.888 skráðum hlutum, sem leiðir til hlutafjárramma frá CHF 620.417,76 til 930.626,64, og tilheyrandi breytinga á grein 3a, málsgreinum 1 til 3, í samþykktum félagsins í þeirri mynd sem birt er á vefsíðu félagsins á https://investors.oculis.com/corporate-governance í kjölfar skráningar þeirra hjá fyrirtækjaskrá Zug.

Hluthafar samþykktu skilyrta heimild til útgáfu á hlutafé fyrir starfsmenn og einstaklinga í sambærilegum stöðum, sem nemur að hámarki CHF 126.777,00 með útgáfu 12.677.700 skráðra hluta, og tilheyrandi breytingu á grein 3c, málsgrein 1, í samþykktum félagsins í þeirri mynd sem birt er á vefsíðu félagsins á https://investors.oculis.com/corporate-governance í kjölfar skráningar þeirra hjá fyrirtækjaskrá Zug.

Ítarlegar niðurstöður atkvæðagreiðslu verða aðgengilegar á vefsíðu félagsins á https://investors.oculis.com/events-presentations.

Nýr stjórnarmaður, Gregory D. Perry

Gregory D. Perry gegndi starfi fjármálastjóra Merus N.V. frá júní 2023 til janúar 2026, í kjölfar yfirtöku Genmab á félaginu í desember 2025. Hann gegndi jafnframt stöðu formanns endurskoðunarnefndar hjá Merus frá maí 2016 til júní 2023. Frá maí 2018 og þar til hann lét af störfum í apríl 2022 var hann fjármálastjóri hjá Finch Therapeutics Group. Perry var fjármála- og rekstrarstjóri hjá Novelion Therapeutics Inc. frá nóvember 2016 til desember 2017. Áður en hann hóf störf hjá Novelion gegndi hann starfi fjármálastjóra Aegerion Pharmaceuticals Inc. frá júlí 2015 þar til félagið sameinaðist Novelion í nóvember 2016. Hann hefur einnig gegnt starfi fjármálastjóra hjá fleiri líftæknifyrirtækjum og fyrr á ferlinum gegndi hann ýmsum stjórnunarstöðum á fjármálasviði hjá ImmunoGen, Domantis Ltd., Transkaryotic Therapeutics, Honeywell og General Electric. Perry lauk B.A.-gráðu í hagfræði og stjórnmálafræði frá Amherst College.

Anthony Rosenberg, stjórnarformaður Oculis, sagði: „Fyrir hönd stjórnarinnar er mér ánægja að bjóða Gregory Perry velkominn til Oculis. Greg er reynslumikill stjórnandi á sviði fjármála og stefnumótunar með meira en tveggja áratuga reynslu úr líftæknigeiranum beggja vegna Atlantshafsins. Hann skarar fram úr vegna þekkingar á báðum mörkuðum og árangurs við að leiða evrópsk fyrirtæki í gegnum strangar kröfur bandarískra fjármálamarkaða, sérstaklega Nasdaq. Þá hefur Greg einstaka blöndu af sérþekkingu á stjórnarháttum, fjármálum og reynslu við að stækka nýsköpunarfyrirtæki innan flókins regluverks fjármálamarkaða. Það verður ómetanlegt að njóta góðs af framlagi hans á meðan við höldum áfram að framfylgja stefnu okkar, skapa langtímaverðmæti fyrir hluthafa og þróa byltingarkennd meðferðarlyf fyrir sjúklinga með augn- og taugaaugnsjúkdóma.“

Samþykktir; Eigin hlutir

Eftir skráningu uppfærðra samþykkta félagsins þann 13. maí 2026 jókst heildarfjöldi skráðra hluta samkvæmt þeim í 62.041.776. Þessi fjöldi hluta felur í sér útgáfu 2.872.301 skráðra hluta, annars vegar vegna uppgjörs á 795.013 hlutum sem gefnir voru út í tengslum við nýtingu eða ávinnslu kauprétta samkvæmt kaupréttar- og hvatakerfisreglum félagsins frá 2023, og hins vegar 2.077.288 hluta sem gefnir voru út vegna nýtingar EBAC-áskriftarréttinda samkvæmt samþykktum félagsins á tímabilinu frá 1. janúar 2025 til 31. mars 2026. Þessi hlutafjáraukning verður skráð hjá fyrirtækjaskrá Zug að lokinni afgreiðslu uppfærðra samþykkta félagsins dags. 13. maí 2026.

Þann 13. maí 2026 samþykkti stjórn félagsins útgáfu 5.750.400 skráðra almennra hluta innan þess hlutafjárramma sem samþykktur hefur verið af hluthöfum og flokkast þeir sem eigin hlutir félagsins („nýju hlutirnir“). Þetta er gert til að félaginu sé kleift að selja hluti á grundvelli gildandi sölusamnings við Leerink partners LLC vegna at-the-market („ATM”) sölukerfis félagsins, eða vegna annarra útboða samkvæmt gildandi skráningarlýsingu félagsins á formi F-3. Við framkvæmd framangreindrar ákvörðunar mun heildarfjöldi skráðra hluta samkvæmt samþykktum félagsins hækka í 67.792.176. Nýju hlutirnir, þegar þeir hafa verið gefnir út, verða ekki seldir strax samkvæmt ATM sölukerfinu eða með öðrum hætti, heldur verður þeim haldið sem eigin hlutir og þar með mun félagið eiga 9,15% af skráðum hlutum sínum.

Um Oculis

Oculis er alþjóðlegt líftæknifyrirtæki (Nasdaq: OCS; XICE: OCS) með áherslu á nýsköpun við meðferð á augn- og augntaugasjúkdómum í því skyni að mæta verulegum óuppfylltum læknisfræðilegum þörfum. Í klínískri þróun hjá Oculis eru þrjú lykilþróunarlyf: OCS-01, augndropar í skráningarrannsóknum sem ætlunin er að verði fyrsta staðbundna meðferðin án inngrips í formi augndropa við sjónhimnubjúg af völdum sykursýki; Licaminlimab, nýir augndropar í skráningarrannsókn sem innihalda TNFα-hamlara og byggjast á notkun erfðamerkis til að þróa einstaklingsmiðaða lyfjameðferð við augnþurrki (DED), og Privosegtor, taugaverndandi tímamótaþróunarlyf í PIONEER-áætluninni sem samanstendur af rannsóknum sem er ætlað að styðja við skráningaráætlanir vegna meðferða við sjóntaugakvillum á borð við sjóntaugabólgu (ON) og blóðþurrð í sjóntaug án slagæðabólgu (NAION), en lyfið kann einnig að hafa víðtæka notkunarmöguleika við ýmsum öðrum augntauga- og taugasjúkdómum. Höfuðstöðvar Oculis eru í Sviss og félagið er með starfsstöðvar í Bandaríkjunum, á Íslandi og í Sviss. Stjórnendur Oculis hafa mikla reynslu á sviði lyfjaiðnaðar og hafa náð miklum árangri hver á sínu sviði. Þá standa leiðandi alþjóðlegir fjárfestingarsjóðir á sviði heilbrigðisvísinda að baki félaginu.

Frekari upplýsingar má finna á www.oculis.com.

Tengiliðir hjá Oculis

Ms. Sylvia Cheung, CFO
sylvia.cheung@oculis.com 

Fjárfestatengsl

LifeSci Advisors
Corey Davis, Ph.D.
cdavis@lifesciadvisors.com  

Fjölmiðlatengsl

ICR Healthcare
Amber Fennell / David Daley / Sean Leous
oculis@icrhealthcare.com