Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2024. Afkoma félagsins var umfram væntingar og skilaði félagið góðum rekstrarhagnaði á árinu.
Á árinu 2024 setti félagið sér nýja vaxtarstefnu til fimm ára (2024-2028), þar sem skilgreindar eru fjórar megin áherslur; vöxtur og arðsemi, þróun í nýjum eignarflokkum, sjálfbærni og framúrskarandi rekstur. Grunnmarkmið vaxtarstefnunnar er kröftugur og arðbær vöxtur þannig að eignir félagsins verði 300 ma.kr. í lok tímabilsins.
Lagt var upp með markviss verkefni í takt við vaxtarstefnuna og góður árangur náðist á öllum þremur sviðum kjarnastarfsemi félagsins; þróun, kaupum og uppbyggingu. Auk þess var lögð aukin áhersla á þjónustu sem er fjórða megin stoð starfseminnar og unnið að fjölbreyttu framboði þjónustulausna sem bæta upplifun viðskiptavina og gagnast samfélaginu. Fjárfest var kröftuglega í nýjum verkefnum á árinu, fyrir um 18,1 ma.kr. sem er talsvert umfram áætlun félagsins um 11 ma.kr. fjárfestingu. Þar af var 9,6 milljarða króna varið í nýjar eignir og rúmir 8,5 milljarða króna fjárfest í endurbótum á fasteignum félagsins.
Árangur á öllum þáttum kjarnastarfseminnar skilaði sér í góðum rekstrarhagnaði félagsins á árinu. Aukningu tekna milli ára má rekja til verðlagshreyfinga og endurnýjun leigusamninga en nýjar eignir skiluðu um 200 m.kr. aukningu. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 10.972 m.kr. og jókst um 822 m.kr. eða 8,1%.
Í ársreikningi félagsins má finna endurskoðað uppgjör ásamt ófjárhagslegri upplýsingagjöf en í ár eru birtar ítarlegar upplýsingar um sjálfbærni í þeim kafla. Í ársskýrslu félagsins fá finna ávarp forstjóra, yfirlit yfir verkefni ársins, stefnu, upplýsingar um sjálfbærni ásamt yfirlit yfir eignasafnið. Nálgast má ársskýrsluna hér.
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri:
„Eftirtektarverður árangur félagsins á árinu sem leið er afrakstur góðrar samvinnu og metnaðarfullrar vaxtarstefnu sem var leiðarljós í því sem félagið tók sér fyrir hendur. Það er ánægjulegt að sjá hversu miklum framgangi við náðum strax á fyrsta ári nýrrar stefnu en sá árangur er til komin vegna öflugrar samvinnu allra hagaðila félagsins og vil ég þakka stjórn, hluthöfum, starfsfólki, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir farsælt samstarf. Framgangur ársins gefur okkur meðbyr á nýju ár þar sem vaxtarstefna félagsins er leiðandi stef í allri ákvarðanatöku og verkefnum. Auk skýrra markmiða er verðugur tilgangur það sem hvetur okkur áfram en við setjum stefnuna á að vera leiðandi afl í uppbyggingu og rekstri fasteigna. Við fjárfestum í nýjum eignaflokkum og þróunarverkefnum af krafti og leggjum þannig okkar framlag á vogarskálarnar til þess mæta eftirspurn eftir fasteignum og innviðum, samfélaginu til hagsbóta.“
Lykiltölur ársins
Lykiltölur rekstrar | 2024 | 2023 |
Leigutekjur | 16.442 | 15.107 |
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | 4.435 | 4.126 |
Stjórnunarkostnaður | 1.033 | 831 |
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 10.972 | 10.150 |
Matsbreyting fjárfestingareigna | 17.800 | 10.750 |
Rekstrarhagnaður | 28.722 | 20.900 |
Hrein fjármagnsgjöld | 9.213 | 10.850 |
Heildarhagnaður | 15.295 | 7.496 |
Hagnaður á hlut | 21,6 kr. | 10,2 kr. |
Lykiltölur efnahags | 31.12.2024 | 31.12.2023 |
Fjárfestingareignir | 226.396 | 189.971 |
Handbært og bundið fé | 2.337 | 1.408 |
Heildareignir | 231.369 | 193.381 |
Eigið fé | 72.429 | 60.273 |
Vaxtaberandi skuldir | 128.840 | 108.432 |
Eiginfjárhlutfall | 31,3% | 31,2% |
Skuldsetningarhlutfall | 58,6% | 58,9% |
Lykilhlutföll | 2024 | 2023 |
Heildarleigutekjur | 17.318 | 15.763 |
Tekjuvegið nýtingarhlutfall (allar eignir) | 94,9% | 95,8% |
Tekjuvegið nýtingarhlutfall (rekstur) | 98,3% | 98,8% |
Arðsemi eigna | 5,9% | 6,0% |
Arðsemi eigin fjár | 23,6% | 12,8% |
Rekstrarhagnaðarhlutfall | 63,4% | 64,4% |
Rekstrarkostnaðarhlutfall | 25,6% | 26,2% |
Stjórnunarkostnaðarhlutfall | 6,0% | 5,3% |
Horfur ársins
Horfur ársins eru óbreyttar frá því sem birt var samhliða stjórnendauppgjöri félagsins þann 27. janúar 2025.
Félagið gerir ráð fyrir að rekstrartekjur ársins verði 17.700 - 18.000 m.kr,. sem er aukning um 8-9% og að rekstrarhagnaður ársins nemi 11.750 - 12.050 m.kr. og aukist um 7-10%.
Gert er ráð fyrir um 4% hækkun verðlags milli ára og að nýtingarhlutfall verði sambærilegt við nýtingu ársins 2024. Kostnaðarhlutföll eru áætluð svipuð og á fyrra ári, sem skilar nær óbreyttu rekstrarhagnaðarhlutfalli fyrir árið í heild.
Ekki er áætlað fyrir tekjum eða hagnaði af nýjum fjárfestingum í horfum ársins en félagið áformar bæði fjárfestingar innan eignasafnsins sem og kaup nýrra tekjuberandi eigna í takti við þá stefnu sem kynnt hefur verið. Horfur verða uppfærðar eftir því sem ástæða þykir til.
Aðalfundur 2025
Aðalfundur félagsins verður haldinn kl. 15:00, miðvikudaginn 2. apríl 2025 á Hotel Reykjavik Natura, Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík.
Tillaga stjórnar um arð
Stjórn leggur til við aðalfund félagsins að arður verði greiddur til hluthafa að fjárhæð 2,20 kr. fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár í félaginu vegna rekstrarársins 2024 eða um 1.533 milljónir króna. Jafnframt er lagt til að arður að fjárhæð 1,50 fyrir hverja krónu nafnverðs útistandandi hlutafjár verði greiddur til hluthafa í lok september. Nánari upplýsingar verða birtar í tillögu stjórnar til aðalfundar.
Um Reiti fasteignafélag
Reitir fasteignafélag hf. er íslenskt hlutafélag og skráð í Kauphöll síðan 2015. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt dótturfélögum, sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi félagsins felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis og er fyrirtækið leiðandi í þeirri starfsemi sem og fasteignaþróun. Vöxtur Reita byggir á þróun og fjárfestingu í innviðum sem styðja við sjálfbært samfélag.
Innan eignasafns Reita eru um 480 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis sem hýsir fjölbreytta atvinnustarfsemi og opinberar stofnanir. Meðal fasteigna Reita má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, Hótel Borg, Hotel Hilton Nordica og Hotel Reykjavík Natura auk skrifstofubygginga við Höfðabakka 9 og að Vínlandsleið ásamt húsnæði Landspítala við Skaftahlíð og Eiríksgötu auk höfuðstöðva Sjóvár, Origo og Advania.
Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.
Nánari upplýsingar
Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 eða netfangið gudni@reitir.is og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri í síma 699 4416 eða netfangið einar@reitir.is.