Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 26. apríl 2023 og var henni hrint í framkvæmd þann 28. apríl 2023, sbr. tilkynningu til kauphallar þann 26. apríl 2023. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 19. viku 2023 keypti Reitir fasteignafélag hf. 1.100.000 eigin hluti að kaupverði 89.300.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
8/5/23 | 10:46 | 100.000 | 81,50 | 8.150.000 | 7.596.248 |
8/5/23 | 15:13 | 200.000 | 80,50 | 16.100.000 | 7.796.248 |
9/5/23 | 12:40 | 200.000 | 80,75 | 16.150.000 | 7.996.248 |
10/5/23 | 09:55 | 200.000 | 80,50 | 16.100.000 | 8.196.248 |
11/5/23 | 12:29 | 200.000 | 82,00 | 16.400.000 | 8.396.248 |
12/5/23 | 12:51 | 200.000 | 82,00 | 16.400.000 | 8.596.248 |
Samtals | 1.100.000 | 89.300.000 | 8.596.248 |
Reitir hafa nú keypt samtals 2.596.248 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 43,0% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 213.288.584 kr. sem samsvarar 38,8% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
Reitir eiga nú samtals 8.596.248 eigin hluti, eða um 1,15% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 6.038.233 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 550 milljónir króna.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.