Stjórn Reita hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 8. apríl 2026 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 9. apríl 2026. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 23. viku 2026 keyptu Reitir hf. 407.874 eigin hluti að kaupverði kr. 47.866.632 skv. sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð |
| 1/6/26 | 14:52 | 100.000 | 117,50 | 11.750.000 |
| 2/6/26 | 09:51 | 50.000 | 117,50 | 5.875.000 |
| 2/6/26 | 14:14 | 50.000 | 117,25 | 5.862.500 |
| 2/6/26 | 14:25 | 50.000 | 117,00 | 5.850.000 |
| 3/6/26 | 09:45 | 50.000 | 116,00 | 5.800.000 |
| 3/6/26 | 15:07 | 4 | 117,00 | 468 |
| 3/6/26 | 15:21 | 49.996 | 117,00 | 5.849.532 |
| 4/6/26 | 14:05 | 7.874 | 118,00 | 929.132 |
| 5/6/26 | 15:24 | 50.000 | 119,00 | 5.950.000 |
| Samtals | 407.874 | 47.866.632 |
Reitir hafa nú keypt samtals 2.724.116 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 90,1% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 316.222.848 kr. sem samsvarar 79,1% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 3.500.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 440 milljónir króna.
Frá lokum fyrsta ársfjórðungs, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 2.724.116 eigin hluti fyrir 316.222.848 kr.
Reitir eiga nú samtals 4.724.116 eigin hluti, eða um 0,69% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 679.275.884.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.