Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 28. janúar 2025. Stjórn félagsins hefur samþykkt breytingu á áætluninni þannig að keyptir verði allt að 4.000.000 hluta fyrir 465 m.kr. í stað 450 m.kr.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 8 viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 600.000 eigin hluti að kaupverði 69.425.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
17/2/25 | 11:07 | 100.000 | 118,00 | 11.800.000 | 13.650.000 |
18/2/25 | 10:11 | 100.000 | 117,25 | 11.725.000 | 13.750.000 |
19/2/25 | 10:16 | 100.000 | 116,00 | 11.600.000 | 13.850.000 |
20/2/25 | 13:04 | 100.000 | 114,00 | 11.400.000 | 13.950.000 |
20/2/25 | 13:52 | 100.000 | 114,00 | 11.400.000 | 14.050.000 |
21/2/25 | 14:05 | 100.000 | 115,00 | 11.500.000 | 14.150.000 |
Samtals | 600.000 | 69.425.000 | 14.150.000 |
Reitir hafa nú keypt samtals 3.600.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 90% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 414.098.611 kr. sem samsvarar 89% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.
Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 4.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 465 milljónir króna.
Frá birtingu stjórnendauppgjörs 2024, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 3.600.000 eigin hluti fyrir 414.098.611 kr.
Reitir eiga nú samtals 14.150.000 eigin hluti, eða um 1,99% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 697.400.000.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á netfangið einar@reitir.is.