Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 27. janúar 2025 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 28. janúar 2025. Stjórn félagsins samþykkti breytingu á áætluninni með tilkynningu í Kauphöll 24. febrúar sl.
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Í 9 viku 2025 keypti Reitir fasteignafélag hf. 400.000 eigin hluti að kaupverði 45.250.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Gengi | Kaupverð | Eigin hlutir eftir viðskipti |
24/2/25 | 10:50 | 100.000 | 114,50 | 11.450.000 | 14.250.000 |
24/2/25 | 14:33 | 885 | 113,00 | 100.005 | 14.250.885 |
24/2/25 | 14:54 | 99.115 | 113,00 | 11.199.995 | 14.350.000 |
25/2/25 | 15:22 | 100.000 | 112,00 | 11.200.000 | 14.450.000 |
26/2/25 | 15:25 | 100.000 | 113,00 | 11.300.000 | 14.550.000 |
Samtals | 400.000 | 45.250.000 | 14.550.000 |
Endurkaupaáætlun Reita fasteignafélags hf., sem tilkynnt var um þann 27. janúar sl. og tilkynnt um breytingu á þann 24. febrúar sl. í Kauphöll er nú lokið. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins nema allt að 4.000.000 hlutum og heildarkaupverð mátti ekki nema hærri fjárhæð en 465 milljónum króna.
Reitir hafa nú keypt samtals 4.000.000 eigin hluti fyrir samtals 459.348.611 kr. í samræmi við endurkaupaáætlunina, og er því framangreindu marki um hámarks fjölda hluta sem keyptir verða náð.
Frá birtingu stjórnendauppgjörs 2024, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 4.000.000 eigin hluti fyrir 459.348.611 kr.
Reitir eiga nú samtals 14.550.000 eigin hluti, eða um 2,04% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 697.000.000.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á netfangið einar@reitir.is.