Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Stjórn Reita fasteignafélags hf. hefur samþykkt árshlutareikning vegna fyrsta fjórðungs ársins 2023.
Lykiltölur rekstrar | 3M 2023 | 3M 2022 |
Tekjur | 3.619 | 3.238 |
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | -1.013 | -857 |
Stjórnunarkostnaður | -198 | -180 |
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 2.408 | 2.201 |
Matsbreyting fjárfestingareigna | 2.508 | 2.154 |
Rekstrarhagnaður | 4.916 | 4.355 |
Hrein fjármagnsgjöld | -3.425 | -2.503 |
Heildarhagnaður | 1.138 | 1.374 |
Hagnaður á hlut | 1,5 kr. | 1,8 kr. |
Lykiltölur efnahags | 31.3.2023 | 31.12.2022 |
Fjárfestingareignir | 176.304 | 172.270 |
Handbært og bundið fé | 817 | 871 |
Heildareignir | 178.825 | 174.880 |
Eigið fé | 55.428 | 56.104 |
Vaxtaberandi skuldir | 101.143 | 97.087 |
Eiginfjárhlutfall | 31,0% | 32,1% |
Skuldsetningarhlutfall | 59,3% | 58,3% |
Lykilhlutföll | 3M 2023 | 3M 2022 |
Nýtingarhlutfall (tekjuvegið) | 96,1% | 94,9% |
NOI hlutfall | 64,0% | 64,5% |
Rekstrarhagnaðarhlutfall | 26,9% | 25,1% |
Stjórnunarkostnaðarhlutfall | 5,3% | 5,3% |
Fjárhæðir eru í milljónum króna nema annað sé tekið fram. Hlutföll í rekstrarreikningi eru reiknuð sem hlutfall heildartekna. |
Guðjón Auðunsson, forstjóri:
„Ágætur gangur var í rekstri félagsins á fyrsta ársfjórðungi og niðurstaða fjórðungsins í takti við væntingar. Horfur um útleigu eru góðar en dæmi eru um að staðan í efnahagslífinu hægi á ákvörðunartöku. Tekjuvöxtur milli ársfjórðunga er umfram verðlag en aukning er í kostnaði sökum hærri fasteignagjalda og sveiflu í viðhaldi. Nokkur stór framkvæmdaverkefni eru í gangi, s.s. í tengslum við stækkun Klíníkurinnar í Ármúla, nýja leigusamninga í Holtagörðum og stækkun vöruhúss Aðfanga í Skútuvogi 7-9. Eignfærðar framkvæmdir á fyrsta ársfjórðungi námu rúmum 1,5 milljarði.“
Horfur ársins
Rekstrarhorfur Reita fyrir árið 2023 hafa verið endurmetnar í ljósi hærri verðbólgu á fyrstu mánuðum ársins en áætlun félagsins gerði ráð fyrir. Stjórnendur félagsins gera nú ráð fyrir að tekjur ársins verði á bilinu 14.850 - 15.050 m.kr. og að rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu verði á bilinu 10.100 - 10.300 m.kr.
Félagið áformar áframhaldandi fjárfestingar innan eignasafnsins sem og kaup nýrra tekjuberandi eigna ef tækifæri gefast.
Nánari upplýsingar og kynningarfundur
Reitir bjóða markaðsaðilum og fjárfestum á kynningarfund þar sem Guðjón Auðunsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 þriðjudaginn 16. maí á skrifstofu Reita í Kringlunni 4-12.
Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita www.reitir.is/fjarfestar.
Um Reiti fasteignafélag
Reitir fasteignafélag er íslenskt hlutafélag. Samstæða félagsins samanstendur af móðurfélaginu, Reitum fasteignafélagi hf., ásamt dótturfélögum, sem öll eru að fullu í eigu móðurfélagsins. Starfsemi félagsins felst í eignarhaldi, útleigu og umsýslu atvinnuhúsnæðis, sem er að stærstum hluta verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Fasteignir í eigu félagsins eru um 135 talsins, um 455 þúsund fermetrar að stærð.
Meðal fasteigna félagsins má nefna stærstan hluta verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar, Spöngina og Holtagarða, skrifstofubyggingar við Höfðabakka 9 og Vínlandsleið ásamt húsnæði höfuðstöðva Icelandair Group, Sjóvár, Origo og Advania og skrifstofu Landspítalans við Skaftahlíð 24. Hótelbyggingar í eigu Reita eru m.a. Hótel Borg, Hilton Reykjavík Nordica og Berjaya Reykjavík Natura. Stærstu leigutakar Reita eru Hagar, Berjaya Hotels, ríki og sveitarfélög. Þá heldur félagið á nokkrum verðmætum byggingarreitum.
Upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 575 9000 eða 660 3320, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416.