REITIR: Skráð lækkun hlutafjár, heildarfjöldi hluta og atkvæða
Á aðalfundi Reita hf. þann 25. mars sl. var samþykkt tillaga stjórnar félagsins um að lækka hlutafé félagsins um 13.000.000 kr. að nafnvirði. Lækkunin tók til eigin hluta félagsins sem það eignaðist með kaupum á árunum 2025 og 2026 í samræmi við endurkaupaáætlanir stjórnar sem aðalfundur félagsins 2025 veitti heimildir fyrir. Hlutunum hefur þannig verið eytt.
Lögmælt skilyrði lækkunarinnar hafa verið uppfyllt og hefur hlutafjárlækkunin nú verið skráð í Fyrirtækjaskrá. Skráð hlutafé Reita eftir lækkunina er að nafnvirði 684.000.000 kr. en var fyrir lækkunina 697.000.000 að nafnvirði. Hver hlutur er ein króna að nafnverði. Allir hlutir eru í sama flokki og njóta sömu réttinda.
Heildarfjöldi hluta og heildarfjöldi atkvæða er þar af leiðandi 684.000.000 kr. að nafnverði.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669 4416.