Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Rekstur Reita gekk mjög vel á árinu 2024. Rekstrarhagnaður félagsins fyrir matsbreytingu nam 10.974 m.kr. og jókst um 824 m.kr. eða 8,1%. Tekjur ársins 2024 námu 16.442 m.kr. sem er aukning um 8,8% frá fyrra ári. Aukningu tekna milli ára má rekja til verðlagshreyfinga en nýjar eignir skiluðu um 200 m.kr. aukningu.
Framgangur vaxtarstefnu, sem kynnt var á árinu var vonum framar. Félagið fjárfesti fyrir 18,1 milljarð á árinu 2024, þar af 9,6 milljarða króna í nýjum eignum og rúma 8,5 milljarða í endurbætur á fasteignum félagsins.
Félagið birtir nú í fyrsta sinn stjórnendauppgjör en í því er að finna lykilupplýsingar um rekstur, efnahag og sjóðstreymi ásamt umfjöllun um það helsta sem gerðist hjá félaginu árið 2024. Stjórnendauppgjörið er ekki endurskoðað af endurskoðendum félagsins og inniheldur ekki ófjárhagslegar upplýsingar en endurskoðaður ársreikningur verður birtur 3. mars næstkomandi.
Guðni Aðalsteinsson, forstjóri:
Árið 2024 var Reitum fasteignafélagi mjög gæfuríkt og markaði upphaf nýs vaxtarskeiðs í sögu félagsins. Ný stefna var kynnt á vormánuðum og vegferð næstu ára kortlögð á sama tíma. Stefnan felur í sér aukinn vaxtarhraða með ríkari áherslu á þróunarverkefni, þar sem fjárfesting í fjölbreyttari eignaflokkum og sjálfbærni er í forgrunni. Markmið félagsins er að vera leiðandi afl í uppbyggingu og rekstri innviða. Þar er sérstaklega horft til samfélagslegra innviða og eignaflokka, þar sem þörfin er brýn og framlag Reita gæti verið þjóðfélaginu jafnt og hluthöfum til heilla.
Lykiltölur ársins 2024
Lykiltölur rekstrar | 2024 | 2023 |
Leigutekjur | 16.442 | 15.107 |
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna | 4.435 | 4.126 |
Stjórnunarkostnaður | 1.033 | 831 |
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu | 10.974 | 10.150 |
Matsbreyting fjárfestingareigna | 17.834 | 10.750 |
Rekstrarhagnaður | 28.808 | 20.900 |
Hrein fjármagnsgjöld | 9.215 | 10.850 |
Heildarhagnaður | 15.295 | 7.496 |
Hagnaður á hlut | 21,7 kr. | 10,2 kr. |
Lykiltölur efnahags | 31.12.2024 | 31.12.2023 |
Fjárfestingareignir | 226.430 | 189.971 |
Handbært og bundið fé | 2.337 | 1.408 |
Heildareignir | 231.369 | 193.381 |
Eigið fé | 72.429 | 60.273 |
Vaxtaberandi skuldir | 128.840 | 108.432 |
Eiginfjárhlutfall | 31,3% | 31,2% |
Skuldsetningarhlutfall | 58,6% | 58,9% |
Lykilhlutföll | 2024 | 2023 |
Heildarleigutekjur | 17.318 | 15.763 |
Tekjuvegið nýtingarhlutfall (allar eignir) | 94,9% | 95,8% |
Tekjuvegið nýtingarhlutfall (rekstur) | 98,3% | 98,8% |
Arðsemi eigna | 5,9% | 6,0% |
Arðsemi eigin fjár | 23,6% | 12,8% |
Rekstrarhagnaðarhlutfall | 63,4% | 64,4% |
Rekstrarkostnaðarhlutfall | 25,6% | 26,2% |
Stjórnunarkostnaðarhlutfall | 6,0% | 5,3% |
Horfur ársins
Horfur í rekstri félagsins fyrir árið 2025 eru góðar. Félagið gerir ráð fyrir að rekstrartekjur ársins verði 17.700 - 18.000 m.kr,. sem er aukning um 8-9% og að rekstrarhagnaður ársins nemi 11.750 - 12.050 m.kr. og aukist um 7-10%.
Gert er ráð fyrir um 4% hækkun verðlags milli ára og að nýtingarhlutfall verði sambærilegt við nýtingu ársins 2024. Gert er ráð fyrir að kostnaðarhlutföll verði sambærileg og á fyrra ári, sem skilar nær óbreyttu rekstrarhagnaðarhlutfalli fyrir árið í heild.
Ekki er áætlað fyrir tekjum eða hagnaði af nýjum fjárfestingum í horfum ársins en félagið áformar bæði fjárfestingar innan eignasafnsins sem og kaup nýrra tekjuberandi eigna í takti við þá stefnu sem kynnt hefur verið. Munu horfur verða uppfærðar þegar tilefni gefur til.
Kynningarfundur
Reitir bjóða fjárfestum og markaðsaðilum á kynningarfund, þar sem Guðni Aðalsteinsson forstjóri og Einar Þorsteinsson fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið.
Fundurinn verður haldinn kl. 8:30 á morgun, þriðjudaginn 28. janúar 2025, á skrifstofu Reita, Kringlunni 4-12, 103 Reykjavík. Fundinum er jafnframt streymt á slóðinni https://vimeo.com/event/4873825/embed/b41aef1262/interaction.
Fjárfestar sem fylgjast með streymi geta sent spurningar og óskað eftir að þær verði teknar fyrir á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is.
Kynningarefni fundarins er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita, www.reitir.is/fjarfestar.
Um Reiti fasteignafélag
Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun ásamt rekstri og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis. Vöxtur Reita byggir á þróun og fjárfestingu í innviðum sem styðja við sjálfbært samfélag.
Innan eignasafns Reita eru um 475 þúsund fermetrar atvinnuhúsnæðis sem hýsir fjölbreytta atvinnustarfsemi og opinberar stofnanir. Gagnkvæmur ávinningur Reita, samstarfsaðila og samfélags er lykilþáttur í starfsemi Reita.
Fyrirtækið er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll síðan 2015. Eigendur eru að stærstum hluta íslenskir lífeyrissjóðir.
Nánari upplýsingar
Upplýsingar veita Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, í síma 624 0000 eða netfangið gudni@reitir.is og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri í síma 699 4416 eða netfangið einar@reitir.is.