Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Fastigheter |
| Industri | Förvaltning |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Á aðalfundi Reita þann 25. mars 2026 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt, til að setja upp formlega endurkaupaáætlun og/eða til að uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum undir kaupréttaráætlun félagsins.
Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins og/eða til að uppfylla skuldbindingar félagsins samkvæmt kaupréttarsamningum. Útgefið hlutafé Reita eftir lækkun hlutafjár er 684.000.000 hlutir og eru 2.000.000 hlutir (0,29%) í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar. Framangreind lækkun hlutafjár var samþykkt á aðalfundi Reita 25. mars síðastliðinn og er unnið að framkvæmd lækkunarinnar hjá Nasdaq Iceland og fyrirtækjaskrá.
Áætlað er að kaupa allt að 3.500.000 hluti sem jafngildir 0,51% af útgefnu hlutafé (eftir lækkun), þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 440 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst fimmtudaginn 9. apríl næstkomandi og mun áætlunin vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 30. september 2026.
Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 413.290 hlutir sem er 25% af meðalveltu marsmánaðar.
Landsbankinn hf. mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.
Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða með tölvupósti á netfangið einar@reitir.is.