18:35:13 Europe / Stockholm

Kalender

2025-03-12 Årsstämma 2025
2025-02-17 Bokslutskommuniké 2024
2024-11-11 Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-26 Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-13 Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-06 Årsstämma 2024
2024-02-12 Bokslutskommuniké 2023
2023-11-13 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-21 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-16 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-14 Bokslutskommuniké 2022
2022-11-15 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-17 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-11 Årsstämma 2022
2022-02-14 Bokslutskommuniké 2021
2021-11-15 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-23 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-17 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-11 Årsstämma 2021
2021-02-15 Bokslutskommuniké 2020
2020-11-16 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-24 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-11 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-10 Årsstämma 2020
2020-02-17 Bokslutskommuniké 2019
2019-11-18 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-19 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-13 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-12 Årsstämma 2019
2019-02-18 Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 X-dag ordinarie utdelning REITIR 1.40 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Reitir fasteignafélag är ett fastighetsbolag. Bolaget äger, förvaltar och utvecklar ett fastighetsbestånd som huvudsakligen består av kommersiella fastigheter. Idag erbjuds fastigheter för kontorslokaler, hotellfastigheter, samt övriga kommersiella fastigheter för företagskunder inom varierande branscher. Verksamheten styrs via flertalet etablerade dotterbolag.
2024-05-01 15:39:37

Á aðalfundi Reita þann 6. mars 2024 var stjórn félagsins veitt heimild til þess að kaupa allt að 10% af eigin bréfum fyrir félagsins hönd í því skyni að koma á viðskiptavakt og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun.

Stjórn Reita hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum og er markmið áætlunarinnar að lækka útgefið hlutafé félagsins. Útgefið hlutafé Reita er 711.550.000 hlutir og eru 5.550.000 hlutir í eigu félagsins við upphaf endurkaupaáætlunarinnar.

Áætlað er að kaupa allt að 5.000.000 hluti sem jafngildir 0,70% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 425 milljónir kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst fimmtudaginn 2. maí næstkomandi og mun áætlunin vera í gildi þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. janúar 2025.

Verð fyrir hvern hlut skal að hámarki vera hæsta verð í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi, hvort sem er hærra. Hámarksmagn hvers viðskiptadags er 338.691 hlutir sem er 25% af meðalveltu aprílmánaðar.

Arion banki hf. mun framkvæma endurkaupaáætlunina fyrir hönd félagsins. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða með tölvupósti á einar@reitir.is.