Fredag 9 Maj | 12:02:00 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2026-01-26 N/A Bokslutskommuniké 2025
2025-11-10 17:00 Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-21 17:00 Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-12 17:00 Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-02 - Årsstämma
2025-01-27 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-11 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-26 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-13 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-06 - Årsstämma
2024-02-12 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-13 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-21 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-16 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-15 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-17 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-11 - Årsstämma
2022-02-14 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-15 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-23 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-17 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-11 - Årsstämma
2021-02-15 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-16 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-24 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-11 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-10 - Årsstämma
2020-02-17 - Bokslutskommuniké 2019
2019-11-18 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-19 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-13 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-12 - Årsstämma
2019-02-18 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning REITIR 1.40 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Reitir fasteignafélag är ett fastighetsbolag. Bolaget äger, förvaltar och utvecklar ett fastighetsbestånd som huvudsakligen består av kommersiella fastigheter. Idag erbjuds fastigheter för kontorslokaler, hotellfastigheter, samt övriga kommersiella fastigheter för företagskunder inom varierande branscher. Verksamheten styrs via flertalet etablerade dotterbolag.
2023-04-26 11:31:50

Reitir fasteignafélag hf. hefur lokið sölu á skuldabréfum í tveimur skuldabréfaflokkum, REITIR150531 annars vegar og nýjum skuldabréfaflokki REITIR150525 hins vegar. 

REITIR150531 er verðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2031 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum fram til lokagjalddaga, þegar allar eftirstöðvar greiðast í einni greiðslu. Greiðslur vaxta og afborgana höfuðstóls fara fram á tveggja mánaða fresti. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 1.480 m.kr. í flokknum.

REITIR150525 er nýr óverðtryggður skuldabréfaflokkur sem er veðtryggður með almenna tryggingafyrirkomulagi félagsins. Greiðslur vaxta fara fram á tveggja mánaða fresti en höfuðstóll flokksins verður greiddur með einni greiðslu á lokagjalddaga, þann 15. maí 2025.

Seld voru skuldabréf í REITIR150531 að nafnverði 4.170 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,35%, en í REITIR150525 voru seld skuldabréf að nafnverði 1.120 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 9,78%.

Samhliða sölunni kaupa Reitir til baka skuldabréf í skuldabréfaflokknum REITIR150523 að nafnverði 1.190 m.kr., en útgáfa skuldabréfanna var liður í endurfjármögnun þess skuldabréfaflokks sem er með lokagjalddaga þann 15. maí næstkomandi.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna föstudaginn 5. maí næstkomandi og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland samhliða.

Grunnlýsing félagsins, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, netfang: einar@reitir.is, sími: 669 4416 og Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, netfang: vbm@islandsbanki.is.