Måndag 2 November | 21:26:46 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-09-16 - X-dag halvårsutdelning REITIR 1.6
2026-05-11 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-26 - X-dag halvårsutdelning REITIR 2.3
2026-01-26 - Bokslutskommuniké 2025
2025-11-10 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-09-22 - X-dag halvårsutdelning REITIR 1.5
2025-08-21 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-05-12 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-04-03 - X-dag halvårsutdelning REITIR 2.2
2025-04-02 - Årsstämma
2025-01-27 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-11 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-26 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-13 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-07 - X-dag ordinarie utdelning REITIR 2.05 ISK
2024-03-06 - Årsstämma
2024-02-12 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-13 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-21 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-16 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-15 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-17 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-11 - Årsstämma
2022-02-14 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-15 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-23 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-17 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-11 - Årsstämma
2021-02-15 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-16 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-24 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-11 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-10 - Årsstämma
2020-02-17 - Bokslutskommuniké 2019
2019-11-18 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-19 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-13 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-12 - Årsstämma
2019-02-18 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning REITIR 1.40 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Reitir är ett fastighetsbolag. Bolaget äger, förvaltar och utvecklar ett fastighetsbestånd som huvudsakligen består av kommersiella fastigheter. Bolaget erbjuder fastigheter för kontorslokaler, hotellfastigheter, samt övriga kommersiella fastigheter för företagskunder inom varierande branscher. Verksamheten styrs via flertalet etablerade dotterbolag.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

REITIR: Uppgjör fyrstu níu mánaða 2026

2026-11-02 18:02:49

Afkoma af rekstri á fyrstu níu mánuðum ársins var góð og í samræmi við áætlanir félagsins. Tekjur voru 14.887 millj. kr. og jukust um 11,1% milli ára og 5,8% umfram verðlag. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu var 9.867 millj. kr. og jókst um 12,5%. 

Kröftugur innri vöxtur og sterk verkefnastaða

Félagið byggði og þróaði fyrir 9,2 ma. kr. á fyrstu níu mánuðum ársins og umfangsmestu verkefnin eru umbreyting skrifstofuhúsnæðis við Nauthólsveg 52 í 87 rýma hjúkrunarheimili, uppbygging á Hyatt hóteli við Laugaveg 176, og nýframkvæmdir við verslunarkjarna á Korputúni. Verkefnastaða félagsins til lengri tíma í uppbyggingar- og þróunarverkefnum hélt áfram að styrkjast með tilkomu nýrra verkefna. Þar ber helst að nefna nýtt hjúkrunarheimili sem rísa mun við Þursaholt á Akureyri og verður um 9.100 fermetrar að stærð og umbreytingu Borgartúns 37 í hjúkrunarheimili sem verður um 7.200 fermetrar að stærð eftir stækkun hússins.

Öll fimm verkefnin sem upp eru talin koma til með að fara í útleigu eða rekstur á árunum 2027 til 2028 og stjórnendur áætla að þau munu skila um 2,5 ma. kr. tekjuaukningu á ársgrunni.

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita:

„Starfsemi Reita gekk vel á fyrstu níu mánuðum ársins og ber þess merki að vaxtarstefnan sem við höfum markað er að skila árangri. Rekstrarumhverfið var þó nokkuð krefjandi á þriðja ársfjórðungi og við höfum fundið fyrir þeirri kólnun í hagkerfinu sem sett hefur svip sinn á haustið. Á meðan vaxtastig helst hátt má gera ráð fyrir að ytri aðstæður verði áfram krefjandi.

Framtíðarhorfur félagsins eru engu að síður bjartar. Sterkur innri vöxtur hefur einkennt árið og leggur traustan grunn að tekjuaukningu til framtíðar. Við settum okkur það markmið að fjárfesta fyrir um 10 milljarða króna í uppbyggingu og framkvæmdum á árinu og það markmið er nú innan seilingar. Þær fjárfestingar munu skila auknum tekjum á komandi árum.

Ný verkefni félagsins renna nýjum stoðum undir starfsemina. Þau breikka tekjugrunn Reita, auka fjölbreytni eignasafnsins, útvíkka starfsemina í nýja flokka, sér í lagi undir heilsutengda starfsemi, og stuðla að áframhaldandi vexti og verðmætasköpun til lengri tíma. Við horfum því bjartsýn fram á veginn.“

Lykiltölur árshlutauppgjörs níu mánaða 2026

Lykiltölur rekstrar 9M 20269M 2025  
Leigutekjur 14.88713.401 
Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna -4.155-3.795 
Stjórnunarkostnaður  -865-837 
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu 9.8678.769 
Matsbreyting fjárfestingareigna 4.8906.797 
Hrein fjármagnsgjöld 12.2948.278 
Hagnaður og heildarhagnaður 1.9695.765 
Hagnaður á hlut 2,9 kr.8,3 kr. 
   
Lykiltölur efnahags 30.9.202631.12.2025 
Fjárfestingareignir 267.364252.194
Handbært og bundið fé 1.4921.167
Heildareignir 272.114256.061
Eigið fé 77.64879.099
Vaxtaberandi skuldir 159.930143.552
Eiginfjárhlutfall 28,7%30,9% 
Skuldsetningarhlutfall 61,5%58,5% 
   
Lykilhlutföll 9M 20269M 2025  
Virkt nýtingarhlufall96,6%97,7%
Nýtingarhlutfall eigna (tekjuvegið) 93,1%94,3% 
Arðsemi tekjuberandi eigna 5,7%5,5% 
Rekstrarhagnaðarhlutfall 61,8%61,7% 
Rekstrarkostnaðarhlutfall 26,0%26,7% 
Stjórnunarkostnaðarhlutfall 5,4%5,9% 


Horfur ársins

Horfur ársins eru óbreyttar frá uppgjöri fyrri árshelmings. Gert er ráð fyrir að tekjur verði á bilinu 19.800-20.100 millj. kr. og jafnframt er gert ráð fyrir hlutfallslega sambærilegri aukningu á rekstrarhagnaði sem verður á bilinu 13.200-13.500 millj. kr. 

Í ljósi krefjandi rekstrarumhverfis og lægri nýtingu á þriðja ársfjórðungi gera stjórnendur ráð fyrir því að rekstrarniðurstaða ársins verði við lægri mörk bilsins.

Ný endurkaupaáætlun

Auk árshlutareiknings, samþykkti stjórn félagsins einnig nýja endurkaupaáætlun þann 2. nóvember sem heimilar félaginu að kaupa 8,5 milljónir hluta eða 1,24% hlutafjár fyrir allt að 1.000 millj. kr. Framkvæmd áætlunarinnar hefst þriðjudaginn 3. nóvember og mun áætlunin vera í gildi þar til öðru hvoru ofangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en til 31. janúar 2027.

Kynningarfundur í streymi

Á rafrænum kynningarfundi þann 3. nóvember kl. 8:30 munu Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, kynna uppgjörið og svara spurningum.  

Streymi fundarins má nálgast á slóðinni: https://vimeo.com/event/6316372/embed/88e8153733/interaction

Fjárfestar geta sent spurningar sem óskað er eftir að verði teknar fyrir á fundinum á netfangið fjarfestatengsl@reitir.is  

Uppgjörið og kynningarefni er aðgengilegt á fjárfestasíðu Reita www.reitir.is/fjarfestar.  

Nánari upplýsingar veita:

Guðni Aðalsteinsson, forstjóri, gudni@reitir.is eða í síma 624 0000  

Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, einar@reitir.is eða í síma 669 4416.