Måndag 7 September | 18:34:00 Europe / Stockholm

Ásar hf. - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

2026-08-24 11:25:40

Á aðalfundi Ása hf. (þá Símans hf.) sem haldinn var þann 12. mars 2026 var samþykkt að heimila stjórn félagsins að kaupa hlutabréf í félaginu þannig að það ásamt dótturfélögum þess eigi, að öðrum lagaskilyrðum uppfylltum, allt að 10% af hlutafé þess, þ.e. að hámarki kr. 240.000.000 að nafnverði, í þeim tilgangi að koma á viðskiptavakt með hluti í félaginu og/eða til að setja upp formlega endurkaupaáætlun í samræmi við ákvæði 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2027, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar hefur stjórn Símans hf. tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin hlutum. Endurkaupin nú munu að hámarki nema 500 milljónum króna að kaupverði.

Arion banki hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verða að hámarki 542.951 hlutir sem jafngildir 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í júlí 2026. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast í dag, mánudaginn 24. ágúst 2026.

Viðskipti félagsins með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina verða tilkynnt í samræmi við lög og reglugerðir.