Torsdag 30 April | 02:03:17 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2026-03-12 - Årsstämma
2026-02-16 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-28 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-19 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-29 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-13 - Årsstämma
2025-02-18 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-22 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-27 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-23 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-14 - Årsstämma
2024-02-20 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-31 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-22 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-25 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-25 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-26 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-10 - Årsstämma
2022-02-15 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-26 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-31 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-12 - X-dag ordinarie utdelning SIMINN 0.00 ISK
2021-03-11 - Årsstämma
2021-02-18 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-27 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-25 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-04-28 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-13 - X-dag ordinarie utdelning SIMINN 0.00 ISK
2020-03-12 - Årsstämma
2020-02-25 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-29 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-27 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-04-30 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-22 - X-dag ordinarie utdelning SIMINN 0.00 ISK
2019-03-21 - Årsstämma
2019-02-26 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-11 - X-dag ordinarie utdelning SIMINN 0.06 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Síminn är ett telekombolag. Bolaget levererar mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, IP-lösningar, samt tillhörande tjänster. Utöver huvudverksamheten erbjuds även olika smartlösningar, inkluderat betalningslösningar samt digitala lösningar för bilkörande. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-04-28 17:46:36

Helstu niðurstöður úr rekstri á 1F 2026

  • Tekjur á fyrsta ársfjórðungi (1F) 2026 námu 7.249 m.kr. samanborið við 7.173 m.kr. á sama tímabili 2025 og hækkuðu um 1,1%. Tekjur af fjarskipta- og sjónvarpsþjónustu stóðu nánast í stað á milli ára. Tekjur af auglýsingamiðlun námu 607 m.kr. samanborið við 563 m.kr. á sama tímabili í fyrra og hækkuðu um 7,8%. Vörusala jókst um 8,4% á milli ára.
  • Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.362 m.kr. á 1F 2026 og hækkaði um 90 m.kr. eða 7,1% frá sama tímabili 2025. EBITDA hlutfallið er 18,8% á 1F 2026 en var 17,7% á sama tímabili 2025. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 416 m.kr. á 1F 2026 samanborið við 189 m.kr. á sama tímabili 2025. Aðlagað fyrir gjaldfærslu vegna dómsmáls nam EBITDA 1.439 m.kr. (19,9%) á 1F 2026 samanborið við 1.733 m.kr. á sama tímabili 2025. EBIT, aðlagað fyrir sektar- og skaðabótagreiðslum ásamt afskriftum óefnislegra eigna, nam 528 m.kr. (7,3%) samanborið við 677 m.kr. á sama tímabili 2025.
  • Hrein fjármagnsgjöld námu 180 m.kr. á 1F 2026 en námu 321 m.kr. á sama tímabili 2025. Fjármagnsgjöld námu 462 m.kr., fjármunatekjur voru 244 m.kr. og gengishagnaður nam 38 m.kr.
  • Hagnaður á 1F 2026 nam 171 m.kr. samanborið við 188 m.kr. tap á sama tímabili 2025. Hagnaður á hlut nam 0,07 kr. á fjórðungnum.
  • Vaxtaberandi skuldir samstæðu að leiguskuldbindingum meðtöldum námu 22,7 ma.kr. í lok 1F 2026, en voru 19,5 ma.kr. í árslok 2025. Handbært fé í lok 1F 2026 nam 4.078 m.kr., en var 980 m.kr. í árslok 2025. Bókfært virði útlánasafns Símans Pay var 4,3 ma.kr. í lok 1F 2026. Hreinar vaxtaberandi skuldir / 12M EBITDA1 í lok 1F 2026 var 2,0x.
  • Eiginfjárhlutfall Símans var 35,4% í lok 1F 2026 og eigið fé 16,7 ma.kr.

1 12M EBITDA er leiðrétt fyrir 77 m.kr. gjaldfærslu vegna dómsmála.


María Björk Einarsdóttir, forstjóri:

„Afkoma fyrsta ársfjórðungs var í samræmi við áætlanir og ber merki um þann stöðugleika sem einkennir grunnrekstur Símans. Þrátt fyrir að við höfum séð fækkun viðskiptavina í fjarskiptum og sjónvarpi á haustmánuðum, voru tekjur af kjarnavörum Símans óbreyttar milli ára, en aftur á móti hækkaði kostnaðarverð seldra vara milli ára, einkum vegna vísitölutengds kostnaðar innviðabirgja og kjarasamningsbundinna launahækkana.

Við erum ánægð að sjá áfram góðan vöxt í auglýsingatekjum og tekjum af fjártækni milli ára, en það hefur verið lykiláhersla síðustu misseri að fjölga tekjustoðum félagsins. Sagan hefur sýnt okkur að tekjur af fjarskiptarekstri halda sjaldnast í við verðbólgu og afkomubati síðustu ára hefur því verið drifinn áfram af aukinni skilvirkni í rekstrinum. Áframhald þar á mun byggja á aukinni nýtingu gervigreindar á öllum sviðum rekstursins.

Samhliða erum við trú þeirri stefnu okkar að fjölga tekjustoðum, og nýta þannig innviði og styrkleika félagsins enn betur. Á síðustu mánuðum höfum við kynnt metnaðarfulla vegferð umbreytingar yfir í fjölbreytta stafræna þjónustusamstæðu undir merkjum Ása. Sterkt sjóðstreymi og hófleg skuldsetning gerir félagið vel í stakk búið fyrir ytri vöxt, og á fjórða ársfjórðungi síðasta árs tilkynntum við um kaup á Greiðslumiðlun Íslands, OK og Öryggismiðstöð Íslands. Þessi félög eiga það öll sammerkt að bjóða upp á stafrænar lausnir í fremstu röð og búa yfir víðtækum viðskiptasamböndum á fyrirtækjamarkaði.

Nú í mars var síðan tilkynnt um undirritun skilmálaskjals um möguleg kaup Símans á útvarps- og vefmiðlum Sýnar, en þar undir eru vandaðir miðlar með mikla útbreiðslu og öflugan mannauð. Verði af viðskiptunum mun sameinað miðlafyrirtæki undir móðurfélaginu Ásum verða í góðri stöðu til að veita framúrskarandi þjónustu í síbreytilegu rekstrarumhverfi. Eintaklega vel heppnuð yfirtaka á Billboard, markviss uppbygging efnisveitunnar okkar og sú áhersla sem við höfum lagt á þróun auglýsingatækni, hefur mótað sterkan grunn til að byggja slíka einingu upp með góðum árangri.

Horfur fram undan í rekstrinum eru góðar og afkomuspáin er óbreytt. Við höfum séð viðsnúning í fjarskiptum og sjónvarpi þar sem viðskiptavinum er byrjað að fjölga á ný eftir brottfall á haustmánuðum. Þá er áfram sterk sala í auglýsingum, meðal annars í tengslum við sveitastjórnarkosningar, þar sem bæði sjónvarps- og umhverfismiðlar Símans bjóða upp á landfræðilega markmiðaðar auglýsingar sem henta sérstaklega vel fyrir stjórnmálaflokka sem vilja nýta auglýsingafé sitt sem best.”


Kynningarfundur 29. apríl 2026

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 29. apríl 2026 kl. 8:30 í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Hluthafar, fjárfestar og markaðsaðilar eru sérstaklega boðnir velkomnir á fundinn. Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum.

Kynningarefni fundarins verður hægt að nálgast í fréttakerfi Nasdaq Iceland og á heimasíðu Símans.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Þeir sem vilja bera upp spurningar geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundarins.


Nánari upplýsingar um uppgjörið veita:

María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans (maria@siminn.is)
Hjörtur Þór Steindórsson, fjármálastjóri Símans (hjortur.steindorsson@siminn.is)