02:48:49 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2025-03-13 Årsstämma 2025
2025-02-18 Bokslutskommuniké 2024
2024-10-22 Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-27 Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-23 Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-14 Årsstämma 2024
2024-02-20 Bokslutskommuniké 2023
2023-10-31 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-22 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-25 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-14 Bokslutskommuniké 2022
2022-10-25 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-26 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-10 Årsstämma 2022
2022-02-15 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-26 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-31 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-27 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-12 Ordinarie utdelning SIMINN 0.00 ISK
2021-03-11 Årsstämma 2021
2021-02-18 Bokslutskommuniké 2020
2020-10-27 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-25 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-04-28 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-13 Ordinarie utdelning SIMINN 0.00 ISK
2020-03-12 Årsstämma 2020
2020-02-25 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-29 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-27 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-04-30 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-22 Ordinarie utdelning SIMINN 0.00 ISK
2019-03-21 Årsstämma 2019
2019-02-26 Bokslutskommuniké 2018
2016-03-11 Ordinarie utdelning SIMINN 0.06 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Síminn är ett telekombolag. Bolaget levererar mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, IP-lösningar, samt övriga tillhörande tjänster. Utöver huvudverksamheten erbjuds även olika smartlösningar, inkluderat betalningslösningar samt digitala lösningar för bilkörande. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden.
2024-02-20 17:19:06

Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Miðla hjá Símanum hefur óskað eftir að láta af störfum hjá Símanum. Magnús hefur setið í framkvæmdastjórn félagsins frá árinu 2014 auk þess að hafa áður starfað hjá fyrrum dótturfélagi Símans Skjánum á árunum 2004-2007. Magnús mun starfa hjá félaginu til mánaðamóta og í framhaldinu verða félaginu innan handar í verkefnum sem snúa að sjónvarpsþjónustu eins og þörf krefur.

Undir sviðið Miðla heyra tæknimál sjónvarpsrekstrar, dagskrárdeild og auglýsingaráðgjöf. Tæknimál munu færast á svið Tækniþróunar sem Logi Karlsson stýrir, en dagskrárdeild og auglýsingaráðgjöf munu færast á skrifstofu forstjóra. Við þessa breytingu fækkar framkvæmdastjórum hjá félaginu úr fimm í fjóra.

Orri Hauksson:
“Magnús hefur verið í forystuhlutverki Símans á sviði íslenskrar miðlunar á undanförnum árum og leitt algera umbyltingu í rekstri sjónvarps okkar. Auk lykilhlutverks hans við umbreytingu og eftirtektarverðum vexti miðla Símans á undanförnum árum hefur Magnús einnig leitt vöruþróun og nýsköpun félagsins á fjölmörgum öðrum sviðum.

Það verður mikil eftirsjá að Magnúsi en sem betur fer höfum við tryggt okkur ráðgjöf hans í nokkrum veigamiklum þróunarverkefnum næstu misseri. Fyrir hönd allra Símastarfsmanna óska ég honum alls hins besta í hverju sem hann tekur sér fyrir hendur.”

Magnús Ragnarsson:
„Síðasti áratugur hjá Símanum hefur verið ótrúlega krefjandi og skemmtilegur. Það er óvíða sem samkeppni er eins virk og í fjölmiðlum og fjarskiptum og ég skil afar sáttur við frábæra stöðu mála hjá Símanum. Sjónvarpsþjónusta Símans er sú langbesta sem landsmönnum stendur til boða, áskrifendur að streymiveitu Símans eru orðnir 50 þúsund og besta íþróttadeild í heimi, Premier League, er aðgengileg á nær 60 þúsund íslenskum heimilum. Miðlun hefur vaxið frá því að vera lítil hliðarbúgrein yfir í að verða í árslok stærsta tekjustoð Símans. Ég kveð Símann því með söknuði og þakklæti en einnig tilhlökkun yfir því sem fram undan er.“

Nánari upplýsingar veitir Orri Hauksson, forstjóri Símans (orri@siminn.is).