Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Telekom & Media |
| Industri | Telekommunikation och -tjänster |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Stjórn Símans hf. hefur samþykkt breytingar á skipuriti félagsins sem fyrirhugað er að taki gildi 1. júlí næstkomandi. Eins og áður hefur verið upplýst er unnið að breyttu skipulagi samstæðunnar með færslu fjarskipta- og miðlarekstrar í dótturfélagið Síminn Rekstur ehf. frá og með 1. júlí næstkomandi.
Breytingarnar eru liður í því að skapa aukið svigrúm til vaxtar og þróunar samstæðunnar. Móðurfélagið, Síminn hf., sem fyrirhugað er að muni bera heitið Ásar að undangengnum hluthafafundi, mun veita dótturfélögum skilgreinda stoðþjónustu og styðja við þróun samstæðunnar í heild.
María Björk Einarsdóttir verður áfram forstjóri móðurfélagsins og mun jafnframt gegna stöðu forstjóra Símans Rekstrar ehf.
Umræddar breytingar munu ekki hafa nein áhrif á þjónustu Símans gagnvart viðskiptavinum.
Síminn hf. (síðar Ásar)
Þrjú svið munu heyra undir móðurfélagið; Fjármálasvið, Upplýsingatækni og Mannauður & Rekstur.
Þrír framkvæmdastjórar munu starfa hjá móðurfélaginu. Hjörtur Þór Steindórsson mun áfram leiða Fjármálasvið félagsins og Logi Karlsson stýra Upplýsingatæknisviði. Ragna Margrét Norðdahl tekur við sem Framkvæmdastjóri Mannauðs & Rekstrar. Ragna Margrét hefur starfað hjá Símanum um árabil og gegnt lykilhlutverki í þróun mannauðsmála sem mannauðsstjóri félagsins auk þess að bera ábyrgð á fasteignarekstri, stefnuinnleiðingu og verkefnastýringu.
Síminn Rekstur ehf.
Fjarskipta- og miðlarekstur samstæðunnar verður rekinn í óbreyttri mynd í dótturfélaginu Síminn Rekstur ehf.
Samhliða starfi sínu sem framkvæmdastjóri Upplýsingatækni hjá Símanum hf. mun Logi Karlsson gegna starfi framkvæmdastjóra Tækniþróunar hjá Símanum Rekstri ehf. Berglind Björg Harðardóttir, Sæunn Björk Þorkelsdóttir og Birkir Ágústsson verða framkvæmdastjórar hjá Símanum Rekstri ehf. og stýra þar sömu sviðum og þau stýra í dag. Berglind verður framkvæmdastjóri Einstaklingssviðs, Sæunn Björk framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs og Birkir framkvæmdastjóri Miðla.
María Björk Einarsdóttir, forstjóri:
“Fyrirhuguð skipulagsbreyting er einn áfangi á þeirri vegferð okkar að byggja upp öfluga og arðbæra samstæðu á sviði stafrænnar þjónustu. Með breytingunum sköpum við skýrari umgjörð utan um fjölbreyttan rekstur samstæðunnar og styðjum við áframhaldandi vöxt. Nýtt skipulag mun skapa kostnaðarhagræði í stoðþjónustu og skerpa áherslur rekstrarfélaga sem fá aukið svigrúm til að einbeita sér að vöruþróun og þjónustu við viðskiptavini.”
Nánari upplýsingar veitir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans - maria@siminn.is.