Síminn hf. – Kaup Símans á Greiðslumiðlun Íslands ehf. og breytingar á skipulagi samstæðu Símans
Þann 23. október sl. var tilkynnt um að Síminn hf. hefði undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Greiðslumiðlun Íslands ehf. („GMÍ“). Þann 28. maí sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið Símanum hf. að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar í málinu.
Síminn fékk í dag afhent hlutafé félagsins á efndadegi viðskiptanna og hefur greitt 2.825 m.kr. að teknu tilliti til leiðréttinga vegna stöðu nettó veltufjármuna, lánasafns Pei og hreinna vaxtaberandi skulda á uppgjörsdegi. Kaupverð er greitt með handbæru fé. Seljendur GMÍ eru Landsbankinn hf. og félögin Bál ehf. og Solvent ehf., sem eru að stærstum hluta í eigu sjóðs í rekstri Alfa Framtaks.
GMÍ er öflug fjártæknisamstæða á sviði kröfustýringar og greiðslulausna. Starfsemin er rótgróin á markaði og býr að traustum tæknilegum grunni, reynslumiklu starfsfólki og þjónustar um 1.600 viðskiptavini á fyrirtækjamarkaði auk fjölmargra viðskiptavina Pei á lánamarkaði. Starfsmenn eru um 75 talsins.
Síminn mun birta uppfærða afkomuspá og gera nánari grein fyrir kaupunum og áhrifum þeirra á rekstur og efnahag samstæðunnar samhliða birtingu uppgjörs fyrir annan ársfjórðung 2026 þann 18. ágúst nk.
Ráðgjafar kaupanda í viðskiptunum voru LOGOS lögmannsþjónusta og Deloitte. Ráðgjafar seljenda voru ARMA Advisory, Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og BBA Fjeldco.
Breytingar á skipulagi samstæðu
Eins og áður hefur verið upplýst breytist skipulag samstæðunnar í dag, 1. júlí, með færslu fjarskipta- og miðlarekstrar í dótturfélagið Síminn Rekstur ehf.
Breytingarnar eru liður í því að skapa aukið svigrúm til vaxtar og þróunar samstæðunnar. Móðurfélagið, Síminn hf., sem fyrirhugað er að muni bera heitið Ásar að undangengnum hluthafafundi, mun veita dótturfélögum skilgreinda stoðþjónustu og styðja við þróun samstæðunnar í heild.
María Björk Einarsdóttir verður áfram forstjóri móðurfélagsins og mun jafnframt gegna stöðu forstjóra hins nýja dótturfélags.
Nánari upplýsingar veitir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans hf. - maria@siminn.is.