Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Telekom & Media |
Industri | Telekommunikation och -tjänster |
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætlun sem tilkynnt var um 28. nóvember sl. er nú lokið.
Í 6. viku 2025 keypti Síminn hf. 2.723.636 eigin hluti að kaupverði 37.299.995 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
3.2.2025 | 09:41 | 1.000.000 | 13,60 | 13.600.000 | 185.448.826 |
4.2.2025 | 11:56 | 1.000.000 | 13,75 | 13.750.000 | 186.448.826 |
5.2.2025 | 09:43 | 723.000 | 13,75 | 9.941.250 | 187.171.826 |
5.2.2025 | 10:12 | 636 | 13,75 | 8.745 | 187.172.462 |
2.723.636 | 37.299.995 | 187.172.462 |
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 28. nóvember 2024. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2025, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.
Síminn átti 184.448.826 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 187.172.462 eða sem nemur 7,06% af útgefnum hlutum í félaginu.
Síminn hefur keypt samtals 36.723.636 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,39% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 499.999.995 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is.