Måndag 7 September | 18:35:39 Europe / Stockholm

Síminn hf. - Uppgjör 2. ársfjórðungs 2026 verður birt eftir lokun markaðar 19. ágúst 2026

2026-08-12 17:23:04

Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung 2026 miðvikudaginn 19. ágúst næstkomandi.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn fimmtudaginn 20. ágúst í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir.

Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á fjárfestavef Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi á vef Símans. Hægt er að senda spurningar á fjarfestatengsl@siminn.is og þeim verður svarað í lok fundar.