Lördag 1 November | 17:43:35 Europe / Stockholm
2025-10-14 17:28:31

Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir þriðja ársfjórðung 2025 þriðjudaginn 21. október næstkomandi.

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 22. október í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir.

Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Hjörtur Þór Steindórsson fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á fjárfestavef Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.

Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í streymi á vef Símans. Þeir sem vilja bera upp spurningar meðan á streymi stendur geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og þeim verður svarað í lok fundar.

Nánari upplýsingar veitir Hersir Aron Ólafsson á netfanginu fjarfestatengsl@siminn.is.