Bifogade filer
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Försäkring |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
238 m.kr. hagnaður og samsett hlutfall 90,9% á fyrsta ársfjórðungi
Fyrsti ársfjórðungur 2026 og horfur
- Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 790 m.kr. (1F 2025: 821 m.kr.)
- Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 201 m.kr. (1F 2025: 1.126 m.kr.)
- Hagnaður tímabilsins 238 m.kr. (1F 2025: 540 m.kr. tap)
- Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu -0,3% (1F 2025: -1,0%)
- Samsett hlutfall 90,9% (1F 2025: 90,2%)
- Horfur fyrir árið 2026 eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingasamningum fyrir árið 2026 og til næstu 12 mánaða áætluð 1.800 – 2.500 m.kr. og samsett hlutfall 93 – 95%
Hermann Björnsson, forstjóri:
Afkoma Sjóvár á fyrsta ársfjórðungi nam 238 m.kr. og samsett hlutfall var 90,9%. Tap af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta nam 201 m.kr. og afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta var 790 m.kr. Tekjuvöxtur nam 3,1%. Tíðarfar var nokkuð hagfellt og tjónaþróun undir áætlunum á fyrsta ársfjórðungi og munar þar mest um jákvæða þróun í ökutækjatryggingum á milli ára ásamt því að ekkert stórtjón henti á fjórðungnum.
Við munum áfram einbeita okkur að þeim áherslum sem hafa mótað sterka stöðu okkar á markaðnum. Staða okkar er traust, og nýjar mælingar sýna að Sjóvá er leiðandi á tryggingamarkaði með ánægðustu viðskiptavinina, auk þess að hljóta hæstu einkunn fyrir persónulega þjónustu og stafræna upplifun. Þessar niðurstöður skipta okkur miklu máli og veita okkur aukinn kraft til að halda áfram á sömu braut. Við leggjum ríka áherslu á að setja viðskiptavininn í forgrunn og að öll samskipti við hann byggist á fagmennsku, þekkingu og gagnkvæmri virðingu. Jafnframt leggjum við áherslu á arðbæran og ábyrgan vátryggingarekstur.
Tap af fjárfestingum fyrir skatta var 201 m.kr og ávöxtun eigna í stýringu -0,3% sem er undir væntingum. Árið hófst með góðum takti á verðbréfamörkuðum en eftir því sem liðið hefur á það hafa versnandi efnahagshorfur og ókyrrð á mörkuðum um allan heim haft áhrif og innlendir markaðir hafa fundið fyrir þeirri þróun. Allir eignaflokkar skiluðu jákvæðri ávöxtun á fjórðungnum fyrir utan skráð hlutabréf þar sem ávöxtun var neikvæð um 7,4%. Þá var ávöxtun ríkisskuldabréfa 0,4%, annarra skuldabréfa 3,2% og safnsins alls neikvæð um 0,3%.
Á stjórnarfundi í dag ákvað stjórn Sjóvár að breyta gjaldþolsviðmiðum stjórnar þannig að gjaldþolshlutfallið liggi nú á bilinu 1,3-1,6 í stað 1,4-1,7 áður. Þá liggur fyrir heimild frá Fjármálaeftirlitinu til endurkaupa eigin hlutabréfa og hefur stjórn ákveðið að hefja kaup á eigin hlutum skv. endurkaupaáætlun sem samþykkt var á aðalfundi 12. mars 2026.
Horfur okkur eru óbreyttar og er afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta árið 2026 og til næstu 12 mánaða áætluð á bilinu 1.800 – 2.500 m.kr og samsett hlutfall 93 – 95%. Leiða má líkum að því að neikvæð áhrif áfallinna vaxta verði minni en horfur gerðu ráð fyrir, um 900 m.kr. á árinu, þar sem vextir hafa hækkað frá áramótum. Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til verulegra breytinga á óskráðum eignum eða á eignasafni.
Við gerð áætlunar er stuðst við ýmis opinber gögn, t.d. spár um þróun vísitalna, hagvöxt og áætlaðan ferðamannafjölda. Þá er litið til tjónaþróunar undanfarinna ára auk þess sem áætlað er fyrir tveimur til þremur stórtjónum á árinu.
Kynningarfundur 30. apríl kl. 16:15
Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 30. apríl kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni sjova.is/afkomukynning. Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.
Fjárhagsdagatal
Aðalfundur 2026……………………………………………. 12. mars 2026
1. ársfjórðungur 2026……………………………………. 30. apríl 2026
2. ársfjórðungur 2026……………………………………. 16. júlí 2026
3. ársfjórðungur 2026……………………………………. 22. október 2026
Ársuppgjör 2026……………………………………………. 11. febrúar 2027
Aðalfundur 2027……………………………………………. 11. mars 2027
Nánari upplýsingar
Meðfylgjandi er fréttatilkynning, árshlutareikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fyrsta ársfjórðungs 2026.
Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða fjarfestar@sjova.is.