Onsdag 4 Mars | 04:59:02 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-03-07 - Årsstämma
2024-02-08 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-31 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-31 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-10 - Årsstämma
2023-02-09 - Bokslutskommuniké 2022
2022-03-11 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-19 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-12 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-12 - Årsstämma
2021-02-11 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-29 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-20 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-14 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-13 - X-dag ordinarie utdelning SJOVA 1.44 ISK
2020-03-12 - Årsstämma
2020-02-13 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-31 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-22 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-16 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-18 - X-dag ordinarie utdelning SJOVA 0.47 ISK
2019-03-15 - Årsstämma
2019-02-15 - Bokslutskommuniké 2018
2018-03-15 - Årsstämma
2018-02-15 - Bokslutskommuniké 2017
2016-03-14 - X-dag ordinarie utdelning SJOVA 0.42 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriFörsäkring
Sjóvá-Almennar tryggingar är ett försäkringsbolag. Idag erbjuder bolaget ett brett utbud av försäkringslösningar inriktade mot person-, hem - och reseförsäkring. Utöver erbjuds även försäkring för fordon och husdjur, samt lösningar för företag som liv- och olycksförsäkring samt övrigt anställningsskydd,. Kunderna återfinns både bland privat- och företagskunder

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-02-12 16:40:40

Helstu niðurstöður úr ársuppgjöri Sjóvá-Almennra trygginga hf. fyrir árið 2025:

2.066 m.kr. hagnaður og samsett hlutfall 92,6% á árinu 2025 

Fjórði ársfjórðungur 202 

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 129 m.kr. (4F 2024: 313 m.kr.) 
  • Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 1.461 m.kr. (4F 2024: 2.679 m.kr.) 
  • Hagnaður tímabilsins 1.400 m.kr. (4F 2024: 2.812 m.kr.) 
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 3,1% (4F 2024: 5,4%) 
  • Samsett hlutfall 98,5% (4F 2024: 96,3%)  

Árið 202og horfur fyrir árið 2026 

  • Hagnaður af vátryggingasamningum fyrir skatta 2.576 m.kr. (2024: 1.283 m.kr.) 
  • Hagnaður af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta 448 m.kr. (2024: 3.435 m.kr.) 
  • Hagnaður tímabilsins 2.066 m.kr. (2024: 4.241 m.kr.) 
  • Ávöxtun fjárfestingareigna í stýringu 3,7% (2024: 9,4%) 
  • Samsett hlutfall 92,6% (2024: 96,2%)  
  • Horfur fyrir árið 2026 gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum verði um 1.800 – 2.500 m.kr. og samsett hlutfall 93 – 95%.  
    • Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi félagsins en áætlanir gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% á ári til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Þá má ætla að áhrif áfallinna vaxta (vöxtunar) vátryggingaskuldar verði neikvæð um 1.300 m.kr. miðað við óbreytt vaxtastig og stærð vátryggingaskuldarinnar. 
    • Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til verulegra breytinga á óskráðum eignum eða á eignasafni.  


Hermann Björnsson, forstjóri: 

Rekstrarniðurstaða ársins 2025 endurspeglar afar sterkan grunnrekstur félagsins í breyttu landslagi á vátryggingamarkaði. Tekjuvöxtur er ekki jafn mikill og síðustu ár sem skýrist bæði af aukinni samkeppni á vátryggingamarkaði og minni aukningu í umsvifum viðskiptavina á fyrirtækjamarkaði á milli ára í takt við þróunina í hagkerfinu. Tjónaþróun var hagfelld á árinu, sér í lagi í ljósi stórtjónaþróunar en eitt stórtjón féll til á árinu samanborið við sex stærri brunatjón á árinu 2024 og útskýrir stórbætta afkomu vátryggingasamninga á milli ára. Hagnaður ársins nam 2.066 m.kr. og arðsemi eiginfjár var 8,4%.  

Afkoma ársins 2025 af vátryggingasamningum fyrir skatta nam 2.576 m.kr. og samsett hlutfall var 92,6%. Tekjuvöxtur nam 3,5% sem er í takt við væntingar en minni en síðustu ár en hafa verður í huga að markaðshlutdeild hefur aukist mikið undanfarin ár með heilbrigðum vexti. Áfram verður lögð áhersla á arðbæran og ábyrgan tryggingarekstur með framúrskarandi þjónustu að leiðarljósi. 

Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta nam 448 m.kr. og var ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu 3,7% á árinu sem er verulega undir væntingum til lengri tíma litið. Góð afkoma var af skuldabréfasafni og nam ávöxtun 8,4%, þar sem ávöxtun ríkisskuldabréfa var 7,9% og annarra skuldabréfa 8,8%. Tap var af skráðum og óskráðum hlutabréfum sem skýrist að mestu af mikilli gengislækkun hlutabréfa í Alvotech og nemur tapið á þeirri stöðu 1.586 m.kr. á árinu. Tap af safni óskráðra hlutabréfa nam 194 m.kr. á árinu. 

Afkoma á fjórða ársfjórðungi var afar góð en hún nam 1.400 m.kr. Afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta var 129 m.kr. og samsett hlutfall 98,5%. Ágætur fjórðungur í vátryggingastarfseminni en töluverð áhrif voru af stóru brunatjóni sem féll í bækur okkar á fjórðungnum. Afkoma af fjárfestingastarfsemi fyrir skatta var góð á fjórðungnum og nam 1.461 m.kr. og var ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu 3,1%. 

Sjóvá var efst tryggingafélaga og með marktækt hæstu einkunn á tryggingamarkaði í Íslensku ánægjuvoginni sem kynnt var á dögunum. Sjóvá hlaut því gullmerki Ánægjuvogarinnar. Þetta er níunda árið í röð sem Sjóvá er efst en tryggingafélag hefur ekki náð að halda efsta sæti í Ánægjuvoginni jafn mörg ár í röð. Jafnframt er þetta hæsta einkunn tryggingafélags frá upphafi mælingarinnar. Við erum stolt og þakklát fyrir að viðskiptavinir okkar eru þeir ánægðustu á tryggingamarkaði en umfram allt er viðurkenningin hvatning til okkar að halda áfram að gera enn betur. 

Í nóvember sl. var fyrsta nýtingartímabil kaupréttaráætlunar félagsins og keyptu starfsmenn hlutabréf í félaginu fyrir 177 m.kr. Í lok árs voru 183 starfsmenn með kauprétti að u.þ.b. 15,5 milljónum hluta sem er um 1,3% af hlutafé félagsins í dag. Ánægjulegt er að sjá góða nýtingu starfsmanna á veittum kaupréttum og að sjá stóran hluta þeirra bætast við hluthafahópinn. 

Sjóvá var tilnefnt sem eitt af bestu íslensku vörumerkjunum árið 2025 í flokknum Vörumerki vinnustaðar. Það er Brandr sem stendur fyrir valinu á Bestu íslensku vörumerkjunum á hverju ári og hljóta þau vörumerki útnefningu sem þykja skara fram úr þegar horft er til stefnumiðaðar vörumerkjastýringar. Sjóvá hlaut einnig viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum sem veitt er af Stjórnvísi, Viðskiptaráði, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq á Íslandi. 

Horfur fyrir árið 2026

Horfur fyrir árið 2026 gera ráð fyrir að afkoma af vátryggingastarfsemi fyrir skatta verði á bilinu 1.800 – 2.500 m.kr. og samsett hlutfall 93 - 95%. Ekki verða birtar horfur fyrir afkomu af fjárfestingastarfsemi en áætlanir félagsins gera ráð fyrir að ávöxtun fjárfestingaeigna í stýringu nemi 8,5% á ári til lengri tíma miðað við núverandi vaxtastig og fjárfestingastefnu. Ekki verður upplýst um frávik frá afkomu af fjárfestingastarfsemi nema þær verði raktar til verulegra breytinga á óskráðum eignum eða á eignasafni. Þá má ætla að áhrif áfallinna vaxta (vöxtunar) vátryggingaskuldar verði neikvæð um 1.300 m.kr. miðað við óbreytt vaxtastig og stærð vátryggingaskuldarinnar.  

Við gerð áætlunar er stuðst við ýmis opinber gögn, t.d. spár um þróun vísitalna, hagvöxt og áætlaðan ferðamannafjölda. Þá er litið til tjónaþróunar undanfarinna ára auk þess sem áætlað er fyrir tveimur til þremur stórtjónum á árinu. 

Tillaga stjórnar um arð 

Arðgreiðslustefna félagsins miðar við að greiða að lágmarki 50% af hagnaði hvers árs til hluthafa í formi arðs að teknu tilliti til gjaldþols. Samþykkt var á stjórnarfundi í dag að leggja til við hluthafafund að greiða út arð að fjárhæð 1.100 m.kr. eða 0,95 kr. á hlut. Sótt hefur verið um heimild frá Fjármálaeftirlitinu til endurkaupa á eigin bréfum sem byggir á heimild aðalfundar Sjóvár 13. mars sl. Endurkaup munu sem fyrr taka mið af gjaldþolsviðmiðum stjórnar. 

Kynningarfundur 12febrúar kl. 16:15  

Markaðsaðilum og fjárfestum er boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð þann 12. febrúar kl. 16:15. Þar munu Hermann Björnsson forstjóri, Sigríður Vala Halldórsdóttir framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni og Þórður Pálsson forstöðumaður fjárfestinga kynna uppgjörið og fara yfir afkomu félagsins. Kynningunni verður jafnframt streymt á slóðinni sjova.is/afkomukynning. Vilji aðilar bera upp spurningar má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is fyrir fundinn eða á meðan á fundi stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar. 

Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum. 

Fjárhagsdagatal 

Aðalfundur 2026…………………………………………….   12. mars 2026 

1. ársfjórðungur 2026…………………………………….   30apríl 2026 

2. ársfjórðungur 2026…………………………………….   16júlí 2026 

3. ársfjórðungur 2026…………………………………….   22október 2026 

Ársuppgjör 2026…………………………………………….   11. febrúar 2027 

Aðalfundur 2027…………………………………………….   11. mars 2027 


Nánari upplýsingar 

Meðfylgjandi er fréttatilkynning, ársreikningur samstæðunnar og fjárfestakynning Sjóvá-Almennra trygginga hf. vegna fjórða ársfjórðungs og ársins 2025. 

Í samræmi við lög birtir Sjóvá ársreikning á sameiginlegu rafrænu skýrslusniði (e. European Single Electronic Format eða ESEF) og má finna gildandi útgáfu í meðfylgjandi .xbri skrá. 

Nánari upplýsingar veitir Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða fjarfestar@sjova.is