Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá: Greiðsla vegna hlutafjárlækkunar
Vísað er til tilkynningar frá Sjóvá-Almennum tryggingum hf. frá 19. október 2021 um niðurstöður hluthafafundar í félaginu þann sama dag, þar sem samþykkt var að lækka hlutafé félagsins úr kr. 1.334.106.378 að nafnverði í kr. 1.267.617.016 að nafnverði með greiðslu til hluthafa.
Lögboðin skilyrði fyrir framkvæmd hlutafjárlækkunarinnar eru nú fyrir hendi þar sem fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra hefur veitt félaginu undanþágu frá innköllunarskyldu, sbr. 2. mgr. 53. gr. laga nr. 2/1995, um hlutafélög.
Lækkunin nemur kr. 66.489.362 að nafnverði. Lækkunarfjárhæð sem er umfram nafnverð, eða kr. 2.433.510.638, mun verða færð til lækkunar á yfirverðsreikningi félagsins. Samtals verða því kr. 2.500.000.000 greiddar til hluthafa hlutfallslega í samræmi við hlutafjáreign þeirra miðað við skráningu í hlutaskrá í lok dags 17. nóvember 2021. Síðasti viðskiptadagur með réttindum til útgreiðslu vegna lækkunar hlutafjár er því mánudagurinn 15. nóvember 2021. Undanskildir útgreiðslu verða eigin hlutir félagsins á viðmiðunardegi. Framkvæmd útgreiðslunnar verður eftirfarandi:
- Ex-dagur - 1: 15. nóvember 2021
- Réttindaleysisdagur (Ex-dagur): 16. nóvember 2021
- Viðmiðunardagur: 17. nóvember 2021
- Lækkunardagur: 18. nóvember 2021
- Greiðsludagur: 24. nóvember 2021
Hér á eftir fara nánari upplýsingar varðandi dagsetningar sem tilgreindar eru í framkvæmd lækkunar hlutafjár.
Ex-dagur - 1*
- Síðasti viðskiptadagur með bréfin ef núverandi hluthafi hyggst selja fyrir framkvæmd lækkunar.
- Kaupandi bréfanna mun fá bréfin afhend fyrir framkvæmd lækkunar og fá greiddar krónur til samræmis við ákvörðun hluthafafundar.
Réttindaleysisdagur (Ex-dagur)*
- Bréf hluthafa sem selur bréf sín á þessum degi eða seinna munu lækka og fær hluthafi greiddar krónur til samræmis við ákvörðun hluthafafundar.
- Seljandi verður að hafa í huga þann möguleika að bréf sem hann selur verða lækkuð fyrir afhendingu bréfa sem getur orðið til þess að viðkomandi haldi ekki á þeim fjölda bréfa sem hann skuli afhenda.
- Bréf kaupanda sem kaupir bréf í Sjóvá á þessum degi eða seinna munu ekki lækka og þar af leiðandi fær kaupandi ekki greitt.
Viðmiðunardagur
- Hlutafjáreign þeirra hluthafa sem skráðir eru í hluthafaskrá félagsins í lok þessa dags mun lækka til samræmis við ákvörðun hluthafafundar.
Lækkunardagur
- Útgefið nafnvirði hlutafjár í Sjóvá mun lækka um kr. 66.489.362 að morgni lækkunardags.
Greiðsludagur
- Þeir hluthafar sem eiga bréf í lok viðmiðunardags fá greiddar krónur til samræmis við áður útgefna tilkynningu um niðurstöður hluthafafundar.
*Hér er miðað við að viðskipti séu gerð upp m.v. T+2 regluna.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is