Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 49 keypti Sjóvá 1.444.751 eigin hluti að kaupverði 54.035.588 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
7.12.2021 | 15:01:01 | 720.000 | 37,20 | 26.784.000 |
9.12.2021 | 10:46:38 | 720.000 | 37,60 | 27.072.000 |
10.12.2021 | 14:26:47 | 4.751 | 37,80 | 179.588 |
Samtals | 1.444.751 | 54.035.588 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 23. nóvember 2021.
Sjóvá átti 37.401.856 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 38.846.607 eigin hluti eða sem nemur 3,06% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 5.764.751 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,45% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 213.011.588 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 8.115.697 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,25% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is