Måndag 15 Juni | 13:45:46 Europe / Stockholm
2026-06-15 11:07:01

Í viku 24 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 800.000 eigin hluti að kaupverði 31.320.000 kr. eins og nánar er greint frá hér:

DagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)
09.06.202614:05:11200.00039,607.920.000
10.06.202610:37:51200.00039,207.840.000
10.06.202613:32:57200.00039,007.800.000
10.06.202611:46:40200.00038,807.760.000
  800.000 31.320.000


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 05.05.2026.

Sjóvá átti 2.591.509 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 3.391.509 eigin hluti eða sem nemur 0,29% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is