Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Í viku 25 keypti Sjóvá 646.506 eigin hluti að kaupverði 21.173.072 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
22.06.2021 | 15:24:20 | 646.506 | 32,75 | 21.173.072 |
Samtals | 646.506 | 21.173.072 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 31. mars 2021.
Sjóvá átti 18.642.932 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 19.289.438 eigin hluti eða sem nemur 1,45% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 12.824.378 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,96% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 419.602.358 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.006.802 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,76% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Sigríður Vala Halldórsdóttir í síma 844-2136 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is