Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 24 keypti Sjóvá 1.784.000 eigin hluti að kaupverði 57.801.600 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
14.6.2022 | 14:21:16 | 892.000 | 32,60 | 29.079.200 |
16.6.2022 | 09:37:36 | 892.000 | 32,20 | 28.722.400 |
Samtals | 1.784.000 | 57.801.600 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 13. maí 2022.
Sjóvá átti 22.947.105 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 24.731.105 eigin hluti eða sem nemur 2,03% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 9.954.669 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,82% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 322.559.809 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 17.434.884 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 2,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 500.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 30. júní 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is