Måndag 22 Juni | 14:31:28 Europe / Stockholm
2026-06-22 11:23:45

Í viku 25 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.114 eigin hluti að kaupverði 83.714 kr. eins og nánar er greint frá hér:

DagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)
16.06.202615:29:512.11439,6083.714
  2.114 83.714


Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 05.05.2026.

Sjóvá átti 3.391.509 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 3.393.623 eigin hluti eða sem nemur 0,29% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Nánari upplýsingar veitir:

Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is