Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 38 keypti Sjóvá 251.037 eigin hluti að kaupverði 9.037.332 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
24.9.2021 | 14:10:58 | 19.066 | 36,00 | 686.376 |
24.9.2021 | 14:45:12 | 181.971 | 36,00 | 6.550.956 |
24.9.2021 | 15:10:25 | 50.000 | 36,00 | 1.800.000 |
Samtals | 251.037 | 9.037.332 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 20. ágúst 2021.
Sjóvá átti 28.276.044 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 28.527.081 eigin hluti eða sem nemur 2,14% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 251.037 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,02% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 9.037.332 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.042.253 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 2,65% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. mars 2022, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is