19:52:08 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2024-03-07 Årsstämma 2024
2024-02-08 Bokslutskommuniké 2023
2023-10-26 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-31 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-31 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-10 Årsstämma 2023
2023-02-09 Bokslutskommuniké 2022
2022-03-11 Årsstämma 2022
2022-02-10 Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-19 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-12 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-12 Årsstämma 2021
2021-02-11 Bokslutskommuniké 2020
2020-10-29 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-20 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-14 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-13 Ordinarie utdelning SJOVA 1.44 ISK
2020-03-12 Årsstämma 2020
2020-02-13 Bokslutskommuniké 2019
2019-10-31 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-22 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-16 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-18 Ordinarie utdelning SJOVA 0.47 ISK
2019-03-15 Årsstämma 2019
2019-02-15 Bokslutskommuniké 2018
2018-03-15 Årsstämma 2018
2018-02-15 Bokslutskommuniké 2017
2016-03-14 Ordinarie utdelning SJOVA 0.42 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriFörsäkring
Sjóvá-Almennar tryggingar är ett försäkringsbolag. Idag erbjuder bolaget ett brett utbud av försäkringslösningar inriktade mot person-, hem - och reseförsäkring. Utöver erbjuds även försäkring för fordon och husdjur, samt lösningar för företag som liv- och olycksförsäkring samt övrigt anställningsskydd,. Kunderna återfinns både bland privat- och företagskunder
2022-01-07 16:43:34

Sjóvá-Almennar tryggingar hf.: Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar

Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf., sem haldinn var 12. mars 2021, veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 133.410.638 eigin hluti í félaginu, en það jafngildir 10% af útgefnu hlutafé félagsins þegar tekið hefur verið tillit til hlutafjárlækkunar sem samþykkt var á sama aðalfundi. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum. Heimildin gildir í 18 mánuði og takmarkast við að eignarhald félagsins og dótturfélaga þess fari ekki umfram 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli framangreindrar heimildar tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Félagið á í dag 39.821.326 eigin hluti og munu endurkaupin að hámarki nema 7.714.312 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 3,75% af útgefnu hlutafé félagsins. Þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 250 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 30. júní 2022 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 627.897 hluti eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. í desember 2021. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Markaðsviðskipti Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/​1995, II. kafla viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. eiga 39.821.326 hluti, eða sem nemur 3,14% af útgefnu hlutafé áður en endurkaup samkvæmt endurkaupaáætluninni hefjast.

Nánari upplýsingar veitir:

Andri Már Rúnarsson í síma 772-5590 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is