Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Sjóvá-Almennar tryggingar hf. birta uppgjör annars ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða þriðjudaginn 17. ágúst nk.
Kynningarfundur í fundarsal félagsins í Kringlunni 5 og vefstreymi
Hermann Björnsson forstjóri mun kynna afkomu félagsins og er markaðsaðilum boðið á kynningarfund í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð kl. 16:15. Kynningunni verður jafnframt streymt beint á slóðinni https://www.sjova.is/um-okkur/fjarfestar/afkomukynning-2f-2021/. Vilji aðilar sem horfa á kynninguna í streymi bera upp spurningar sem tengjast uppgjörinu má senda þær á netfangið fjarfestar@sjova.is á meðan á útsendingu stendur og verður þeim svarað í lok kynningarinnar.
Uppgjörsefni verður aðgengilegt á vef Sjóvár www.sjova.is/fjarfestar frá þeim tíma er kynningin hefst og verður upptaka af fundinum aðgengileg á sömu síðu að fundi loknum.