Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Försäkring |
Stjórn Skaga hf. hefur boðað til aðalfundar sem haldinn verður í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 108 Reykjavík, fimmtudaginn 27. mars næstkomandi kl. 16:00, en auk þess verður boðið upp á rafræna þátttöku. Endanleg dagskrá fundarins er í viðhengi.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja aðalfundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig á skráningarsíðu fundarins:
https://www.lumiconnect.com/meeting/skagiagm2025
Frestur til að skrá sig er til kl. 16:00 þann 25. mars, eða tveimur dögum fyrir aðalfund. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.
Í samræmi við tillögu frá hluthafa hefur setningu verið bætt við 1. mgr. 5. kafla starfskjarastefnu til að afmarka með skýrari hætti heimilt umfang kaupauka. Breytinguna má sjá í meðfylgjandi uppfærðri starfskjarastefnu.
Öll gögn vegna aðalfundar, s.s. tillögur stjórnar til aðalfundar, starfskjaraskýrsla ársins 2024, skýrsla tilnefningarnefndar og enskar þýðingar fundargagna hafa verið gerð aðgengileg á vefsíðu félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Leifur Hreggviðsson með tölvupósti á fjarfestatengsl@skagi.is