Måndag 8 Juni | 13:31:39 Europe / Stockholm
2026-06-08 11:00:00

Í 23. viku 2026 keypti Skagi 5.000.000 eigin hluti að kaupverði alls kr. 92.100.000 eins og hér segir:

VikaDagsTímiKeyptir
hlutir
ViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
Vika 231.6.202610:28 1.000.000 18,35 18.350.000 51.332.688
Vika 232.6.202610:24 1.000.000 18,30 18.300.000 52.332.688
Vika 233.6.202610:35 1.000.000 18,05 18.050.000 53.332.688
Vika 234.6.202615:02 1.000.000 18,50 18.500.000 54.332.688
Vika 235.6.202610:35 1.000.000 18,90 18.900.000 55.332.688
Samtals  5.000.000 92.100.000 


Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd 1. júní, sbr. tilkynningu á markað 29. maí 2026. Áætlað er að kaupa allt að 30 milljón eigin hluti sem jafngildir um 1,55% af útgefnu hlutafé félagsins, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en samtals 500 milljónir króna að kaupverði. Endurkaup munu standa yfir þar til öðru hvoru framangreindra viðmiða um magn eða fjárhæð er náð, en þó aldrei lengur en við lokun markaða 15. júlí 2026.

Skagi hefur nú keypt samtals 5.000.000 eigin hluti í félaginu að kaupverði kr. 92.100.000 og á nú samtals  55.332.688 eigin hluti eða 2,85% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.940.311.770.

Framkvæmd endurkaupaáætlunar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021, sbr. 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. framselda reglugerð nr. 2016/1052 um tæknilega staðla og skilyrði endurkaupaáætlana.

Frekari upplýsingar veitir:
Álfhildur Pálsdóttir, með tölvupósti á fjarfestatengsl@skagi.is