Måndag 8 December | 05:40:18 Europe / Stockholm
2025-04-08 21:57:42

Skagi (áður Vátryggingafélag Íslands) hefur  gefið út skýrslu um gjaldþol og fjárhagslega stöðu vegna vátryggingastarfsemi á árinu 2024. Í skýrslunni eru ítarlegar upplýsingar um starfsemi félagsins, gjaldþol og fjárhagslega stöðu. Skýrslan er gefin út í samræmi við kröfur laga um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016.

Í skýrslunni eru veittar upplýsingar sem er ætlað að auka skilning á starfsemi félagsins. Fjallað er um stjórnkerfi félagsins, rekstur og afkomu af vátryggingastarfsemi og fjármálastarfsemi, skipulag og framkvæmd áhættustýringar, innri stjórnun og eftirlitskerfi, áhættusnið og aðferðir við mat á gjaldþolsstöðu og eiginfjárstýringu.

Skýrsluna má finna á vefslóðinni: https://vis.is/skyrsla-um-gjaldthol-og-fjarhagsstodu/