Söndag 3 Maj | 08:06:53 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2025-03-27 - Årsstämma
2025-02-26 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-27 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-29 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-30 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-22 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-19 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-17 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-05 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-16 - Årsstämma
2023-02-23 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-20 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-18 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-06 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-17 - Årsstämma
2022-02-24 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-21 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-19 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-30 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-19 - Årsstämma
2021-02-25 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-22 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-20 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-04-30 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-19 - Årsstämma
2020-02-27 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-23 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-21 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-05-02 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-21 - X-dag ordinarie utdelning SKAGI 1.07 ISK
2019-03-20 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018
2018-08-22 - Kvartalsrapport 2018-Q2
2018-03-22 - Årsstämma
2018-02-28 - Bokslutskommuniké 2017
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning SKAGI 2.17 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriFörsäkring
Skagi är ett försäkringsbolag. Bolaget erbjuder ett varierande utbud av försäkringslösningar inriktat mot person-, hem - och reseförsäkring. Utöver erbjuds försäkring för fordon samt olika lösningar för företag. Kunderna återfinns huvudsakligen bland företagskunder inom varierande branscher, inkluderat industri, jordbruk, hälsa och sjukvård, samt finans. Störst verksamhet återfinns på den isländska marknaden.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-04-29 01:13:30

Í kjölfar stefnurýni hefur stjórn Skaga hf. (Skagi) samþykkt uppfærðar áherslur í stefnu félagsins sem miða að því að auka arðsemi eftir umbreytingar síðustu ára. Niðurstaðan eru aðgerðir í átt að einfaldara stjórnskipulagi og auknu hagræði af rekstri samstæðunnar. Þá verður ráðist í sértæk verkefni sem miða að því að nýta styrkleika samstæðunnar til að ná fram hagkvæmari fjármagnsskipan og auka samningsbundnar tekjur í fjármálastarfsemi.

Skipulagsbreytingar og fækkun í framkvæmdastjórn

Með uppfærðum áherslum munu eiga sér stað breytingar á framkvæmdastjórn samstæðunnar. Stjórn Fossa fjárfestingarbanka hf. (Fossar), dótturfélags Skaga, hefur komist að samkomulagi  við Steingrím Arnar Finnsson um starfslok, en hann hefur gegnt starfi forstjóra Fossa frá því í október 2023. Steingrímur mun vera félaginu áfram til ráðgjafar í þágu lykilviðskiptasambanda, þróunar viðskipta við erlenda aðila og annarrar tekjusköpunar félagsins. Brynjar Þór Hreinsson hefur verið ráðinn forstjóri Fossa, en hann tekur við starfinu frá og með næstu mánaðarmótum. Brynjar hefur gegnt starfi fjármálastjóra Skaga hf. frá árinu 2023 og hefur yfir 20 ára reynslu á fjármálamarkaði. Með þessari skipan stígur hann jafnframt úr hlutverki fjármálastjóra Skaga en situr áfram í framkvæmdastjórn samstæðunnar.

Einföldun á fyrirkomulagi samstæðu og lækkun kostnaðar

Samhliða þessum breytingum verður starfsemi móðurfélags einfölduð. Ekki verður ráðið í starf fjármálastjóra samstæðu í stað Brynjars og jafnframt er gert er ráð fyrir að tilfærsla verkefna, kostnaðarhagræði og einföldun á starfsemi móðurfélags skili allt að 180 milljónum króna í árlega lækkun kostnaðar á samstæðugrunni. Þá verður áhersla á áframhaldandi kostnaðarhagræði í öllum félögum samstæðunnar.

Forstjóri Skaga hf., Haraldur I. Þórðarson:

„Afrakstur stefnurýni undanfarinna vikna er skýr sýn á einföldun, samvinnu og aukna arðsemi. Breytingarnar eru mikilvægt skref til þess að samstæða Skaga verði enn betur í stakk búin til þess að uppskera til framtíðar. Einföldun á skipulagi skapar forsendur fyrir enn betri arðsemi dótturfélaga, þar sem þau fá meira svigrúm og skýrara umboð til að sinna kjarnastarfsemi sinni ásamt áherslum þvert á samstæðu.

Framlag Steingríms til uppbyggingar Fossa, allt frá stofnun félagsins árið 2015, hefur verið ómetanlegt. Sem einn af stofnendum Fossa og leiðtogi á uppbyggingarskeiði félagsins er hann órjúfanlegur partur af sögu þess. Í hlutverki forstjóra leiddi Steingrímur Fossa í gegnum umfangsmikið umbreytingarferli, úr verðbréfafyrirtæki í fjárfestingarbanka, og hafa tekjur bankans tvöfaldast undir hans stjórn. Það er mikið virði fyrir Fossa að njóta ráðgjafar Steingríms í tengslum við tekjusköpun þar sem reynsla hans og víðtækt tengslanet munu nýtast.

Brynjar Þór, sem tekur við keflinu, er öflugur leiðtogi með djúpa þekkingu á fjármálamarkaði. Ég er fullviss um að metnaður hans og fjölbreytt reynsla af hinum ýmsu sviðum banka- og eignastýringarstarfsemi muni nýtast Fossum vel til enn frekari vaxtar.“

Nýr forstjóri Fossa fjárfestingarbanka hf., Brynjar Þór Hreinsson:

Ég er þakklátur því trausti sem mér er sýnt að taka við forstjórastöðu Fossa á þessum tímapunkti. Á sama tíma og bankanum hefur tekist að vaxa og byggja upp ný tekjusvið undanfarin ár þá er verkefnið að auka samningsbundnar tekjur bankans og bæta arðsemi.

Tækifæri eru fólgin í sérstöðu Fossa á fjármálamarkaði, þar sem styrkleikinn hefur ávallt legið í áherslunni á að vera besti milliliður fjármagns fyrir viðskiptavini. Markmiðið er að nýta þessa styrkleika Fossa og samstæðunnar í heild til að skapa aukið virði og betri þjónustu fyrir viðskiptavini. Hjá Fossum starfar öflugt starfsfólk og ég hlakka til að vinna með því og viðskiptavinum bankans í átt að þessu markmiði.”

Steingrímur Arnar Finnsson:

„Upp er runninn rétti tíminn fyrir mig til að segja skilið við forstjórastól Fossa fjárfestingarbanka. Ákvörðunin byggir bæði á rýni á stefnu Skaga og þeim áhuga mínum á að nýta krafta mína að hluta til annars konar verkefna. Við tekur nýtt og spennandi ráðgjafahlutverk fyrir Fossa með áherslu á uppbyggingu erlendra tengsla þar sem mikil tækifæri eru til sóknar. Þar kemur að góðum notum víðtækt tengslanet mitt heima og erlendis og reynsla eftir um rúmlega tuttugu ára samfelldan feril í fjárfestingarbankaþjónustu.

Um leið og ég þakka starfsfólki Fossa fyrir ánægjulegt samstarf vil ég óska Brynjari velfarnaðar í nýju starfi og bankanum og öllu starfsfólki áframhaldandi velgengni. Ég er spenntur fyrir því að vinna áfram að hag bankans og skerpa á sérstöðu hans gagnvart samkeppnisaðilum með frábæru starfsfólki hjá Fossum. Einn helsti styrkur Fossa er menningin sem við höfum búið til og einkennist af drifkrafti, vinnusemi og gleði.“ 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga, með tölvupósti á netfangið haraldur@skagi.is