Bifogade filer
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Försäkring |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Afkoma tryggingarekstrar áfram góð
Afkoma fjárfestinga og fjármálastarfsemi undir markmiðum
Afkoma 1F 2026 hjá samstæðu Skaga hf.
Helstu lykiltölur 1F 2026
- Tap eftir skatta nam 336 m.kr. (1F 2025: -1.353 m.kr.).
- Tap af grunnrekstri nam 81 m.kr. (1F 2025: -284 m.kr.).
- Hagnaður á hlut nam -0,18 kr. á tímabilinu.
- Arðsemi eigin fjár er -5,7% á ársgrundvelli (1F 2025: -25,1%)
- Vöxtur tekna af vátryggingarsamningum var 6,9% og afkoma nam 138 m.kr. (1F 2025: -51 m.kr.)
- Samsett hlutfall var 98,3% (1F 2025: 100,7%).
- Kostnaðarhlutfall í tryggingastarfsemi var 19,1% (1F 2025: 19,2%).
- Hreinar tekjur af fjármálastarfsemi námu 714 m.kr. (1F 2025: 780 m.kr.) sem er 9% samdráttur á milli ára, en afkoma af fjármálastarfsemi var -20 m.kr. fyrir skatta (1F 2025: -34 m.kr.).
- Fjárfestingartekjur námu 366 m.kr (1F 2025: -522 m.kr.) sem samsvarar 0,7% ávöxtun.
Haraldur I. Þórðarson, forstjóri:
„Rekstur samstæðunnar gekk ágætlega á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Tekjur og afkoma af grunnrekstri jukust hvoru tveggja milli ára og afkoma grunnrekstrar var umfram áætlun á tímabilinu. Jákvæð afkoma af tryggingarekstri stóð upp úr á fjórðungnum en fyrsti ársfjórðungur er jafnan sá þyngsti vegna árstíðarbundins tjónaþunga. Tekjur af fjármálastarfseminni drógust saman á milli ára en afkoman jókst þó lítillega þrátt fyrir lægri þóknanatekjur þökk sé aðhaldi á kostnaðarhlið. Afkoma fjárfestinga var ágæt í ljósi markaðsaðstæðna og talsvert umfram viðmiðunarvísitölu.
Afkoma af tryggingastarfsemi hélt áfram að aukast og var samsett hlutfall fyrsta ársfjórðungs það lægsta síðan 2018. Afkoma trygginga á fjórðungnum var í heild mjög sterk, þrátt fyrir að veðurfar og nokkur stærri tjón í mars hafi haft neikvæð áhrif. Tekjuvöxtur var áfram sterkur og í samræmi við áætlanir, sem gerðu ráð fyrir að hann myndi dragast saman milli ára. Iðgjöld í líf- og sjúkdómatryggingum jukust um 11,2% á fyrsta ársfjórðungi sem endurspeglar áherslu félagsins á að vaxa í þeim greinaflokki. Samstarf VÍS og Íslandsbanka skilaði áfram góðum árangri og ánægjulegt var að sjá góðan takt í sölu vátrygginga. Ánægja viðskiptavina jókst áfram samkvæmt mælingum og sem fyrr var lögð rík áhersla á að bæta upplifun viðskiptavina um land allt.
Fjórðungurinn var undir væntingum í fjármálastarfseminni, en tæplega 9% samdráttur var í tekjum á milli ára. Afkoma Fossa var jákvæð um 3 m.kr. fyrir skatt á fjórðungnum en frávik frá áætlun skýrðust einkum af lægri tekjum af fyrirtækjaráðgjöf ásamt því að lækkanir á mörkuðum undir lok fjórðungsins höfðu neikvæð áhrif á fjármunatekjur bankans. Vaxtamunur bankans hefur farið hratt vaxandi undanfarin misseri og skilaði í 152 m.kr á tímabilinu, sem er það hæsta frá upphafi. Heildartekjur ÍV námu 225 m.kr. á fyrsta fjórðungi og jukust um 14% frá fyrra ári. Talsverður tekjuvöxtur kom til að hluta vegna vaxtar eigna í stýringu seinni hluta síðasta árs. Afkoma félagsins var þó neikvæð á tímabilinu sem skýrðist af kostnaði tengdum starfslokum vegna fækkunar starfsfólks sem bókfærður var í janúar. Eignir í stýringu félagsins voru nánast óbreyttar á fjórðungnum og námu 227 ma.kr. í lok tímabilsins.
Fjárfestingatekjur námu 366 m.kr. sem samsvarar 0,7% ávöxtun í samanburði við 0,8% lækkun viðmiðunarvísitölu safnsins. Afkoma fjárfestinga var ágæt í ljósi markaðsaðstæðna en dregið hafði verið nokkuð úr vægi skráðra hlutabréfa í lok síðasta árs sem og upphafi þessa árs. Allir eignaflokkar skiluðu afkomu umfram viðmið að frátöldum ríkisskuldabréfum. Mest var afkoma af öðrum skuldabréfum, skráðum og óskráðum skuldabréfum fyrirtækja, eða rúmlega 501 m.kr. sem skilaði 2,4% hækkun á tímabilinu. Aukið var á vægi skráðra skuldabréfa fyrirtækja á fjórðungnum en dregið úr skráðum hlutabréfum á móti.
Í gær tilkynntum við um uppfærðar áherslur í kjölfar stefnurýni sem miða að því að auka arðsemi eftir umbreytingar síðustu ára með aðgerðum í átt að einfaldara stjórnskipulagi og auknu hagræði af rekstri samstæðunnar. Þá verður ráðist í sértæk verkefni sem miða að því að nýta styrkleika samstæðunnar til að ná fram hagkvæmari fjármagnsskipan og auka samningsbundnar tekjur í fjármálastarfsemi. Steingrímur Arnar Finnsson mun stíga úr stóli forstjóra Fossa og Brynjar Þór Hreinsson taka við hlutverki hans. Steingrímur mun á næstu misserum gegna ráðgjafahlutverki fyrir félagið sem er afar mikilvægt í þeirri vegferð sem er framundan. Samhliða þessum breytingum verður starfsemi móðurfélags einfölduð. Ekki verður ráðið í starf fjármálastjóra samstæðu í stað Brynjars og jafnframt er gert er ráð fyrir að tilfærsla verkefna, kostnaðarhagræði og einföldun á starfsemi móðurfélags skili allt að 180 milljónum króna í árlega lækkun kostnaðar á samstæðugrunni.“
Kynningarfundur
Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 29.apríl, klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins í Ármúla 3, Reykjavík. Haraldur Þórðarson, forstjóri, og Brynjar Þór Hreinsson, fjármálastjóri, munu kynna uppgjörið. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi og nálgast má upptöku af honum á fjárfestasíðu félagsins. Þar verður einnig hægt að nálgast kynningarefni fundarins.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Haraldur I. Þórðarson, forstjóri Skaga, í netfanginu haraldur@skagi.is