04:44:29 Europe / Stockholm
2024-02-15 15:42:01

Aðalfundur SKEL fjárfestingafélags hf. verður haldinn kl. 16:00, fimmtudaginn 7. mars 2024 í Ballroom salnum á Reykjavík Edition, Austurbakka 2, 101 Reykjavík.

Hluthafar eru hvattir til að forskrá sig á aðalfund félagsins með því að senda nafn og kt. og eftir atvikum útfyllt umboðseyðublað á fjarfestar@skel.is 

Hjálagt er dagskrá aðalfundar, fundarboð, tillögur til fundarins og skýrsla tilnefningarnefndar.

Öll fundargögn má finna á heimasíðu félagsins: https://skel.is/hluthafar/hluthafafundir-skel

Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri, fjarfestar@skel.is